Sunnudagur 9. ágúst, 2026
11.1 C
Reykjavik

Margslungið veður í kortunum

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Margslungið veður er í kortunum þessa dagana, en versta veðurútlitið er þó á norðvestanverðu landinu með norðaustan stormi eða roki með snjókomu í dag og á morgun, en þó má gera ráð fyrir að það dúri um tíma í dag. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings.

Þar segir að einnig að fyrir norðan- og austanlands er austan hvassviðri í fyrstu og fylgir því talsverð úrkoma fyrir austan, en sunnanlands hefur vindur snúist í hægari suðlæga átt með skúrum eða éljum.

Vindur snýst einnig til suðlægrar áttar norðan- og austanlands í dag og styttir þá upp á þeim slóðum. Bætir í vind með éljagangi norðaustanlands eftir hádegi á morgun, en fer veðrið að ganga niður annað kvöld.

Þegar líður á miðvikudag ætti því að vera orðið skaplegt veður á landinu og fimmtudagur lítur vel út. Veðurfærðingur mælir með að nýta hann vel til útivistar því næsta lægðakerfi nálgast úr suðvestri og má búast við miklum umhleypingum um næstu helgi.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -