Þriðjudagur 17. febrúar, 2026
-7.2 C
Reykjavik

Margrét stórhneyksluð á landamærunum: „Maður spyr sig hvað er á seyði“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Mig langar að fræðast aðeins frá ykkur sem hafið verið að koma frá útlöndum, en það virðist sem svo að ESB sé búið að taka yfir landamæragæslu á Íslandi, en í flugstöðinni er um tíu innsigluð borð þar sem erlendir aðilar sitja með sýnaglös bak við sig og spyrja mann um þessi PCR „test“ eða bólusetningarvottorð; ekki einn einasti Íslendingur sjáanlegur og auðvitað þarf maður að svara öllum spurningum á ensku,“ segir Margrét Friðriksdóttir í færslu á samfélagsmiðli.

Hún segir að „svo fór ég í Covid prófið og það var einnig erlend manneskja sem tók sýnið og erlendur öyggisvörður sem virtist vera sérsveitarmaður, fylgdist með öllu ferlinu.“

Margrét bætir við í spurnartón hvort ESB sé „komið með krumlurnar í landamæri Íslands eða hvað er á seyði? Ég hef ekki séð þetta í neinu öðru landi en hef ferðast til þriggja landa á tímum Covid og þar eru alltaf innfæddir sem taka á móti manni.“

Margréti finnst þetta mál allt hið undarlegasta:

„Mér finnst þetta mjög undarlegt fyrirkomulag, að þegar ég lendi í mínu landi þarf ég að tjá mig á ensku við landamærin og maður spyr sig hvað er á seyði, því nóg er búið að vera um atvinnuleysi á Suðurnesjum í Covid og því undarlegt að íslendingar sjái ekki um þetta.“ Hún segir deginum ljósara að „þetta fólk býr ekki hér, heldur er það sent hingað til að sinna þessari vinnu. Maður spyr sig svo hvað verður um þessi sýni ef útlendingar eru að halda utan um þau; er verið að senda lífsýni Íslendinga erlendis og í hvaða tilgangi? „Það er mörgum spurningum ósvarað,“ segir Margrét sem mun „óska eftir svörum á hvers vegum þetta fólk er; mun halda ykkur upplýstum þegar skýr svör hafa borist.“

Í athugasemd við færsluna má segja að Eggert Stefánsson loki umræðunni með þessum orðum sem hann beinir til Margrétar:

- Auglýsing -

„Ertu virkilega að kvarta undan erlendu vinnuafli á Íslandi, á Facebook síðu Íslendinga erlendis? Stórkostlegt!“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -