Fimmtudagur 15. október, 2026
5.8 C
Reykjavik

Margrét hefur fengið alveg nóg í Vesturbænum: „Þetta er mjög svo óþolandi!“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Margrét nokkur, íbúi í Vesturbænum, hefur fengið algjörlega nóg af stanslausu gelti hunds sem býr í nágrenninu. Sumir nágrannanna hafa áhyggjur af meðferðinni á dýrinu meðan aðrir segja þetta óþarfa væl.

Margrét gerir geltið að umtalsefni í færslu í hverfishópi íbúanna á Facebook og birtir þar jafnfram myndband af stöðugu gelti hundarins. Hún segir þar:

„Þessi hundur, sem býr í einhverjum þessara húsa, geltir stanslaust, látlaust, nánast alla daga. Getur eigandi hans vinsamlega ekki skilið hann eftir einan. Þetta er mjög svo óþolandi.“

Sumir Vesturbæingar taka undir með Margréti og hafa einhverjir þeirra áhyggjur af dýrinu. Sigrún er ein þeirra. „Hundgreyið er greinilega mjög vansæll og eigandinn ber ábyrgð. Þetta er algjörlega ólíðandi fyrir hundinn og þá sem búa í kring. Eins má tilkynna til MAST ef grunur leikur á slæmri meðferð, nafnlaust,“ segir Sigrún.

Elín nokkur stígur fram og telur sig vera umræddan hundaeiganda. „Mér heyrist þetta sé hundurinn minn sem ég hef átt í bráðum 14 ár og enginn kvartað undan honum fyrr Vissulega geltir hann en ekki stöðugt eins og þú vilt halda fram Hann er mjög lítið einn heima og þú getur alveg hætt að hafa áhyggjur á að hann sé skilin eftir einn,“ segir Elín og bætir við:

„Mér þykir leiðinlegt að dýrin mín skuli valda ónæði og skal ég taka tillit til þess eins og hægt er (en hundar gelta kettir mjálma krakkar öskra og ekki mundi mér detta í hug að kvarta þótt ég heyri í krökkum á svölunum eða fólk með partý hafa hátt sem gerist oft á svölunum í kring ) En enn og aftur sorrý.“

Katrín telur þetta óþarfa væl. „Flytja bara út á land ef þetta angrar ykkur. Þið búið nú í miðborginni,“ segir Katrín.

- Auglýsing -

 

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -