Mánudagur 9. mars, 2026
3.8 C
Reykjavik

Magnús Björn Ásgrímsson biður stjórn KSÍ afsökunar: „Ekki séð jafn mikið eftir neinni ákvörðun“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Formaður knattspyrnudeildar Leiknis Fáskrúðsfirði sendir stjórn KSÍ afsökunarbeiðni. Sér hann eftir að hafa skrifað undir áskorun um afsögn.

Málefni KSÍ hafa verið mikið í fjölmiðlum undanfarnar vikur en stjórn KSÍ sagði af sér í kjölfar ásakana um þöggun um ofbeldis og kynferðisbrotamálum landsliðsmanna. Austurfrétt segir frá því í frétt í dag að Magnús Björn Ásgrímsson, formaður knattspyrnudeildar Leiknis Fáskrúðsfirði hafi skrifað afsökunarbeiðni til stjórnar KSÍ, á Facebook síðu sinni. Ástæða afsökunarbeiðninnar er sú að í síðstu viku sendu stjórnarformenn níu liða í neðri deildum íslensku knattspyrnunnar, bréf til stjórnar KSÍ og hvöttu til þess að hún segði af sér. Í því bréfi stóð meðal annars „Orðspor íslenskrar knattspyrnu er stórlega skaðað og því þarf tafarlaust að boða til þings og móta viðbrögð til framtíðar sem nýtur trausts allra aðildarfélaga og íslensks samfélags.“

Í afsökunarbréfi Magnúsar Björns skrifar hann „Kæru stjórnarmenn, Langar að biðja ykkur afsökunar á að hafa sett mitt nafn (og UMF Leiknis) undir bréf ,,neðrideildarfélaga” með kröfu um aukaþing sambandsins.“ Þá heldur hann áfram og segir „þar hjó sá er hlífa skyldi. Ég held að ég hafi ekki séð jafn mikið eftir neinni ákvörðun á þeim tæpa aldarfjórðungi sem ég hef starfað fyrir UMF Leikni.“ Magnús Björn þakkar svo stjórninni fyrir ómetanlegt framlag þeirra til íslenskrar knattspyrnu og vonar að þau bjóði sig aftur fram til stjórnarsetu á næsta aukafundi KSÍ.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -