Þriðjudagur 10. mars, 2026
3.6 C
Reykjavik

„Maður má ekki gefa blóð ef hann stundar kynlíf með manni: Kona sem hefur verið með mörgum má það”

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Brynja Dan Gunnarsdóttir leiðir hugann að því að „nú þegar hinsegin dagar ganga í garð er gott að líta aðeins í kringum sig og hugsa; hugsa af hverju erum við enn að minna á rétt hinsegin fólks og baráttu þeirra? Hugsa hvað viljum við gera betur? Og hvar getum við gert betur?“

Hún nefnir að „við höldum kannski að jafnréttið sé vel á veg komið á sem flestum stöðum hér á litla Íslandi, eða að minnsta kosti á mjög góðri leið þangað. En svo verður manni litið til reglna á borð við þær sem blóðbankinn hefur sett. Banki sem við vitum aldrei hvenær við, eða einhver nákominn okkur, gæti þurft á að halda,“ segir hún og bætir við:

„Bankinn sem bjargar lífum og við viljum að sé stútfullur og reiðubúinn þegar fólk þarf á að halda. Ég hef ekki mátt gefa blóð síðustu ár þar sem ég fæ mér af og til stöku flúr, en er alltaf á leiðinni eins og svo margir, því ég vil leggja mitt af mörkum. Mér finnst nefnilega mikilvægt að við getum öll lagt okkar af mörkum.“

Brynja segir að „bankinn gerir upp á milli blóðs. Ekki vegna litarháttar; ekki vegna trúar eða kyns – heldur vegna kynhneigðar. Grunlaus um fordóma samfélagsins bárust mér fregnir af þessu fyrir stuttu síðan og hef ég eiginlega ekki getað hætt að hugsa um þetta síðan.“

- Auglýsing -

Henni þykir reglur bankans vera fáránlegar:

„Þær eru þannig að karlmaður má ekki gefa blóð ef hann hefur stundað kynlíf með öðrum karlmanni, engu skiptir hvort það séu skyndikynni eða hann í sambúð. Þannig mega til dæmis tveir karlmenn sem eru par og búnir að vera lengi saman ekki gefa blóð. En kona sem hefur verið með mörgum mismunandi mönnum má hins vegar gefa nokkra millilítra þegar henni sýnist; svo lengi sem enginn þeirra manna sem hún hefur verið með hafi á sinni ævi stundað kynlíf með öðrum manni.“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -