Fimmtudagur 15. janúar, 2026
0.8 C
Reykjavik

Losnaði úr þriggja ára ofbeldisfullu hjónabandi með dópsala: „Ég er búin að vera edrú í 11 mánuði“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Ég er búin að vera edrú í 11 mánuði, á þessu rúma ári er skrítið að líta til baka og skoða hvað líf mitt hefur breyst. Ég hafði ekkert af mér að gefa enda föst í þrjú ár í ofbeldisfullu hjónabandi með dópsala. Neyslan tók frá mér allt sem ég átti og skipti mig máli – orku, eignir, sjálfsvirðingu og smám saman vini og fjölskyldu.“

Þetta segir kona sem vill ekki koma fram undir nafni í færslu sem hjálparsamtökin Það er von deila á Facebook. Markmið þeirra er að sýna þeim sem eru í neyslu að það sé annað líf í boði. Fyrrnefnd kona segist hafa loksins lent á botninum. „Það var ekki fyrr en ég lenti harkalega á botninum og var búin að misbjóða sjálfri mér líkamlega og andlega að ég sá hvað þetta var brengluð tilvera, að ég væri meira virði en þetta og þetta væri ekki ég sjálf heldur væri ég orðin virkilega veik af alkóhólisma og andlegum veikindum vegna neyslunnar,“ segir hún.

Að lokum fór hún á rétta braut.

Ég fæ aldrei til baka persónuna sem ég var fyrir neysluna

„Það varð einhver hugarfarsbreyting innra með mér og ég vildi finna mig aftur, skilja eftir þessa ömurlegu útgáfu af sjálfri mér í fortíðinni og það má segja að ég hafi risið upp úr öskunni líkt og Fönix. Mér tókst að rata inn á réttu brautina aftur 19. september 2019, flutti stuttu síðar erlendis og á virkilega fallegt líf hér og þó það komi upp vandamál eða áföll í lífi mínu eins og hjá öllum öðrum þá er ég svo þakklát fyrir að geta tekist á við þau edrú í stað þess að deyfa mig og fresta þeim,“ segir hún.

Konan segist stolt af afrekum sínum.

„Ég var að byrja í námi og á í fyrsta skipti í mörg ár heilbrigð markmið og er að móta mér stefnu um hvað ég vil fá útúr þessu lífi og þar er helst að finna einhversskonar nám og starf við umönnun því að ég í dag hef svo mikið af mér að gefa. Ég fæ aldrei til baka persónuna sem ég var fyrir neysluna en ég veit að ef ég held áfram þessari sjálfskoðun og vel að halda áfram að vera edrú þá verð ég með tímanum enn sterkari kona sem veit nákvæmlega hver hún er og hvað hún á skilið, hvert hún stefnir og getur verið sönn og trú sjálfri sér og síðast en ekki síst, stolt af afrekum sínum – einn dag í einu.“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -