Þriðjudagur 10. mars, 2026
3.6 C
Reykjavik

Lögreglan varar við „vönduðu netsvindli – Skipulagðir glæpir og algent tjón frá 2 millum upp í 10“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar fólk við „vönduðu netsvindli í bílaviðskiptum, vinnuvélum og dýrum íhlutum. Lögreglu hafa borist nokkuð af tilkynningum um slík vörusvik á undanförunum árum, en nú eru svindlararnir farnir að koma sér fyrir á viðurkenndum sölusíðum erlendis.“

Lögreglan nefnir að þessir óprúttnu aðilar „falsa skráningar og setja upp heimasíður til að ljá svikum sínum trúverðugleika og bjóða vörur á þessum síðum. Þeir eru liprir í tölvupóstsamskiptum og eiga það til að fylgja eftir í símtölum. Myndirnar sem fylgja hafa svindlararnir einfaldlega stolið af öðrum síðum og eru þær að því leiti trúverðugar, nema að þeim var líka stolið.“

Bendir líka á að það sé „eftir miklu að slægjast fyrir glæpamennina og oftast er þetta armur af skipulögðum glæpum. Gefin eru öll góð fyrirheit, en um leið og greiðsla hefur borist þeim þá hverfa þeir og peningarnir.

Algengt tjón í svona málum er frá 2.5 milljónum og upp í 10, þannig að svindlararnir geta náð til sín miklum fjármunum á þennan hátt. Enda erum við að sjá vönduðustu glæpina þar sem gróðinn er mestur.

Þar liggur einmitt vandinn; það er að glæpasamtök eru farin að leggja vandaða vinnu í þess konar svindl. Við biðjum því fólk að sýna hæfilega tortryggni, sem í dag er að ganga út frá því að það sem er á netinu sé svindl, þar til að grandvar kaupandi viti annað.“

- Auglýsing -

Einnig:

„Eitt sem má gera er að skoða heimasíður hjá https://whois.domaintools.com, en þar er hægt að sjá ýmsar upplýsingar um skráningu síðunnar; ekki síst hvað síðan er gömul og hvort einhver sé skráður ábyrgur. Þetta er samt alls ekki 100% og það borgar sig líka að leita að umsögnum á netinu.“

Lögreglan brýnir fyrir fólki að láta ALLS ekki þær fyrstu duga því svindlararnir sjálfir vita þetta og setja inn mjög jákvæðar umsagnir um sjálfa sig:

- Auglýsing -

„Þetta eru ágæt atriði til að hafa í huga; en ef þið eruð að eiga viðskipti við einhvern í fyrsta sinn eða að viðskiptaaðili vill fá peninga á nýjan reikning þá eru það hættumerki.

Ef þið eruð í samstarfi við aðra, spyrjist þá líka fyrir um áreiðanleika. Gerið sem mest til að sannfæra ykkur um hvort um er að ræða raunveruleg fyrirtæki eða hreinræktað svindl.

Það eru ansi margir þarna úti sem mun reyna að svindla á ykkur og því byrjar netöryggi hjá ykkur sjálfum.“

Bætir við:

„Í eðli sínu er samskonar svindl vel þekkt í gegn um aldirnar, en með tilkomu internetsins/veraldarvefsins, þá er aðgengi svindlara að stórum hóps orðið miklu auðveldara og hægt að stunda nafnleysi með að koma algjörlega fram undir fölsku nafni.

Við höfum fengið tilkynningar um samskonar svindl á öðrum síðum, eins og Brask og brall; þar eru minni upphæðir í húfi, en oft eru fögur fyrirheit og tölvusvikapóstur í nafni þekktra aðila eins og Fed-ex eða paypal, að ofgreitt hafi verið fyrir þjónustu og þegar brotaþoli sé búinn að borga mismuninn þá verði greiðsla lögð inn á þá. Í þeirri von að brotaþoli sendi peninga og þá láta glæpamennirnir ekki heyra í sér aftur.“

Lögreglan leggur mikla áherslu á að „ef þið sjáið eitthvað grunsamlegt hafið samband við okkur í [email protected] eða [email protected] – góðar ábendingar hjálpa okkur að sjá hvað er í gangi og geta orðið tilefni til umfjöllunar.

Farið varlega og passið ykkur.“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -