Þriðjudagur 10. mars, 2026
3.6 C
Reykjavik

Lögreglan skaut og særði vopnaðan mann á Egilsstöðum – Hafði gengið berserksgang með loftriffil

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Lögreglan á Austurlandi skaut mann, vopnaðan byssu við íbúðarhús á Egilsstöðum í gærkvöld. Maðurinn var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur en ekki er vitað um líðan hans.

Atvikið hafi átt sér stað laust fyrir klukkan 11 í gærkvöld. Hafði lögreglan verið kölluð til eftir að skothvellir heyrðust í götunni. Samkvæmt heimildum Mannlífs, skiptist lögreglan á skotum við manninn eftir að hafa ítrekað skipað honum að leggja frá sér byssunni. Því hlýddi maðurinn ekki og því var hann skotinn. Stóð umsátursástandið yfir í um hálftíma. Maðurinn er heimamaður.

Maðurinn hafði gengið bersersgang í efstu götu Egilsstaða, Dalseli og skotið úr öflugum loftriffli á nokkur hús í götunni. Íbúi eins hússins var staddur í bílskúrnum þegar hann heyrir hvelli fyrir utan og fór að athuga málið. Sá hann þá að búið var að sundurskjóta rúður í húsi hans. Lögreglan hafi beðið manninn um að leggja niður vopn sem hann varð ekki við og því hafi lögreglan skotið hann í kviðinn. Sá vitnið blóð leka niður götuna. Var maðurinn á lífi er hann var fluttur með sjúkraflugi.

 

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -