Þriðjudagur 10. mars, 2026
2.8 C
Reykjavik

Lögreglan með fallegt jólatré og sendir hlýjar kveðjur og bendir á þjónustu sína yfir hátíðarnar

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -
„Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.“
Löggan skreytir jólatré sitt
Lögreglan vill benda á að „lokað verður í þjónustudeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og í móttöku/afgreiðslu embættisins á Hverfisgötu 115, Krókhálsi 5b og Vínlandsleið 2-4 í Reykjavík, Dalvegi 18 í Kópavogi og Flatahrauni 11 í Hafnarfirði fram á þriðja í jólum, eða til 27. desember.“
Gleðileg lögreglujól. Flottir þessir
Auðvitað verður „útköllum sinnt með hefðbundum hætti, enda er sólarhringslöggæsla á höfuðborgarsvæðinu alla daga ársins, og minnt er á að ef óskað er eftir skjótri aðstoð lögreglu skal undantekningarlaust hringja í 112.“
Einnig bendir lögreglan á að „ef erindið er af öðrum toga, þ.e. ekki brýnt og þolir e.t.v. einhverja bið, vinsamlegast hafið samband við þjónustuver embættisins á Hverfisgötu 113-115, Reykjavík, í síma 444 1000. Þar verður aftur opið frá og með kl. 8 árdegis mánudaginn 27. desember.
Sömuleiðis er hægt að koma upplýsingum á framfæri um hvaðeina með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected] Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er jafnframt á fésbókinni og það er líka hægt að senda henni skilaboð og fyrirspurnir á þeim vettvangi.“
Að endingu vill lögreglan minna „á upplýsingasíma lögreglu 800 5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um skipulagða brotastarfsemi, eða önnur brot sem fólk hefur vitneskju um.“
[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -