Lögreglan á Suðurnesjum hefur sent frá sér ansi athyglisverða, og mögulega spennandi tilkynningu.
Hljómar svona:
„Í vikunni barst til okkur veski sem hafði fundist í Nettó Iðavöllum. Í veskinu er að finna talsverða fjárhæð í reiðufé. Við leitumst eftir því að koma veskinu í réttar hendur.“

Eins og við mátti búast þá þarf „eigandinn að sjálfsögðu að sanna eignarhald sitt á veskinu með því að lýsa veskinu og segja okkur hversu mikið af peningum eru í því.“
Sem áður vill lögreglan almennt hjálpa fólki og verkefnin eru af margvíslegum toga; en þetta hlýtur að teljast ánægjulegt veski, þaðer ef réttur eigandi þess finnst:
„Hjálpumst endilega að við að gera hátíðarnar auðveldari fyrir þann sem tapaði veskinu með að koma veskinu í hans hendur.“
Í athugasemdum við færsluna má lesa texta nokkurra spéfugla, en málið er því miður ekki leyst, eða eins og lögreglan ritaði í athugasemdunum í dag:
„Okkur hefur ekki enn tekist að finna eiganda veskisins þrátt fyrir virkilega mikinn áhuga á þessum pósti. Við höldum leitinni áfram.“

