Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir segir ljóðið Litla ljót ekki fjalla um Bergþóru Einarsdóttur sem hefur sakað Megas og Gunnar Örn Jónsson um að hafa nauðgað sér.
Sjá einnig: Textinn Litla ljót eftir Megas: „Liggðu flöt og krepptu hné, glenntu þig svo sem gleiðust sé“
Segir Steinunn að ljóðið byggi á karakter eftir Guðberg Bergsson sem hún lék eitt sinn á sviði.
„Allsherjar og menntamálanefnd er á villigötum ef þetta eru raunverulegar vangaveltur, að svipta eigi Megas heiðurslaunum.
Mig langar að benda á að viðbjóðsljóðið umrædda, Litla ljót, er byggt á karakter eftir Guðberg Bergsson sem ég fékk að leika í leikgerðinni, Sannar Sögur af sálarlífi systra, sem unnið var upp úr Tangabókum Guðbergs, frumsýnt ‘94 .Karakterinn heitir Dídí, hún er hölt, misþroska, ljót og miskunarlausir karlar sífellt að ,,sprauta” í hana. Ljót saga um illa meðferð á varnarlausum.“
Segist Steinunn ekki draga í efa vanlíðan Bergþóru en að ljóðið sé þó ekki um hana.
„Ég dreg ekki í efa vanlíðan þá sem Bergþóra lýsir að samskipti hennar við Megas og Gunna súkkat hafi haft í för með sér en ljóð Megasar um Litlu ljót er EKKI um Bergþóru. Annað sem er næsta víst er að kveðskapur Megasar mun lifa okkur öll hvort sem okkur líkar betur eða verr.“
Í samtali við blaðamann Vísis, segist Steinunn Ólína ekki hafa ætlað sér að tjá sig um þetta mál en hafi svo skipt um skoðun. „Og ég ætla ekki að tjá mig frekar um þetta mál. Þetta er verkefni fyrir bókmenntafræðinga framtíðarinnar sem munu fást við verk Megasar löngu eftir að við öll erum dauð.“

