Fimmtudagur 15. október, 2026
5.8 C
Reykjavik

Lisa þarf þína hjálp: „Það var skvett málningu yfir bílinn hjá mömmu minni“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Lísa Emmudóttir óskar eftir vitnum að því þegar rauðri málningu var skvett yfir alla bifreið ömmu sinnar. Atvikið átti sér stað um hábjartan dag á Laugaveginum í Reykjavík.

Lísa gerði um málið færslu og auglýsti eftir aðstoð við að upplýsa verknaðinn í fjölmennu Facebook-samfélagi, Braski og bralli. Þar segir hún:
„ÓSKA EFTIR VITNI! Það var skvett málningu yfir bílinn hjá mömmu minni líklegast í kringum 13:30 í dag 21. maí. Hún var lögð í stæði hjá Laugavegi 176 (fyrir framan gamla veitingastaðinn Red Chili). Ef einhver hefur séð þetta gerast eða hefur einhverjar upplýsingar, vinsamlegast hafið samband í einkaskilaboðum eða í síma 6925933!,“ segir Lísa og bætir við:

„Allar upplýsingar vel þegnar, hversu litlar eða miklar þær kunna að vera! Það er greinilega ekki öruggt að leggja bílnum í löglegt bílastæði fyrir utan vinnustaðinn sinn!“

Steinunn er ein þeirra fjölmörgu sem ekki á orð fyrir atvikinu. „Hver gerir svona?,“ spyr Steinunn. Kristjana nokkur veltir svipuðu fyrir sér. „Hver fjandinn er að fólki?,“ spyr Kristjana.

Erlendur hefur ákveðnar grunsemdir. „Vonandi skýrist þetta en það læðist að manni grunur um að einhver telji að lagt sé í stæði sem ætlað er öðrum. Þetta segir mér að flýta ákvörðun minni að setja myndavél í minn bíl,“ segir Erlendur.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -