Alzheimersjúk kona á áttræðisaldri fannst heil á húfi á Akureyri í morgun eftir að hafa verið úti í alla nótt.
Lögreglan á Akureyri fékk tilkynningu laust eftir 02:00 í nótt, um konu á áttræðisaldri sem hefði farið að heiman frá sér á Akureyri og ekki skilað sér heim aftur.
Samkvæmt færslu lögreglunnar á Facebook er talið að konan hefði farið að heiman um miðnætti og að vegna sjúkdómsstöðu sinnar hafi hún ekki þótt líkleg til að rata aftur heim.
„Hófst strax eftirgrennslan eftir konunni að hálfu lögreglu og þá voru björgunarsveitir í Eyjafirði sem og Þingey ræstar út til aðstoðar og leitar og aðgerðastjórn virkjuð. Leitað var með skipulögðum hætti út frá heimili viðkomandi og var það gert með fjölda björgunarsveitarmanna, lögreglumanna, drónum og leitarhundi,“ segir í færslunni.
Segir einnig að þó að kalt hafi verið úti hefðu aðstæður til leitar verið góðar en leitarmenn gátu meðal annars fylgt líklegum sporum í snjónum frá heimili konunnar.
„Þrátt fyrir að hafa misst af þeim á nokkrum stöðum var það til þess að konan fannst heil á húfi laust fyrir kl. 07:00, þá enn á gangi og búin að ganga rúmlega 3 kílómetra frá heimili sínu. Var hún flutt á Sjúkrahúsið á Akureyri til aðhlynningar.“
Þá þakkar lögreglan öllum sem kom að verkefninu og minnist á samtakamáttinn sem til staðar er þegar þörf er á.

