Þriðjudagur 10. mars, 2026
3.8 C
Reykjavik

Landspítalinn á brauðfótum: Flestir vilja að meira fé verði veitt til spítalans

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Málefni Landspítalans og þá sérstaklega rekstrarvandi hans, hefur verið mikið í umræðunni  undanfarna daga. Spítalinn er á brauðfótum, ef litið er til rekstrartalna.

Sé tekið mið af niðurstöðum nýrrar könnunar er ljóst að meirihluti þjóðarinnar vill að meira fé verði veitt til rekstursins.

Samkvæmt könnuninni, sem Prósent gerði fyrir Fréttablaðið, þá vilja tæp sextíu prósent þeirra sem tóku afstöðu að mun meira fé verði veitt til reksturs spítalans. Tæp þrjátíu prósent vilja að aðeins meira fé verði veitt til hans og þrettán prósent vilja halda fjárframlögunum óbreyttum. Aðeins tvö prósent vilja veita minna fé eða mun minna fé til spítalans.

Þegar á heildina er litið eru konur hlynntari auknum fjárveitingum en 64 prósent þeirra vilja veita mun meira fé í reksturinn en hjá körlum er hlutfallið 50 prósent.

Nær enginn munur er á afstöðu fólks sem býr á landsbyggðinni og höfuðborgarsvæðinu.

Þeir sem eru með mánaðarlaun upp á átta hundruð þúsund krónur eða meira eru líklegri til að vilja halda fjárveitingunum óbreyttum; 25 prósent þeirra vilja að þær haldist óbreyttar eða lækki.

- Auglýsing -

Menntun virðist hafa lítil áhrif í þessu samhengi sem er annað en þegar kemur að stjórnmálaskoðunum; hjá stuðningsmönnum allra flokka vill meirihlutinn að meira fé verði veitt til spítalans.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -