„Við tjáum okkur ekki um málefni einstakra sjúklinga“
Svo einfalt er svar Landspítalans þegar Mannlíf leitaði viðbragða um kæru á hendur sjúkrahúsinu frá rithöfundinum Hrafni Jökulssyni. Hann telur sig heppinn að vera á lífi eftir tvær alvarlegar líkamsárásir á geðdeildinni og hefur kært stjórnendur Landspítala til lögreglu, líkt og Mannlíf greindi frá í gær.
Sjá einnig: Hrafn Jökulsson tvívegis barinn alvarlega á Landspítalanum: „Hann ætlaði að drepa mig“

Hrafn hefur ítekað verið nauðungarvistaður á geðdeild spítalans á árinu og mætir hann fyrir Landsrétt í dag til að tala máli sínu um lausn frá nauðungarvistuninni. Þann 9. nóvember réðst annar vistmaður geðdeildar tvívegis á rithöfundinn, með þeim afleiðingum að Hrafn rotaðist í fyrra skiptið og í síðasti árásinni var honum bjargað af starfsmanni deildarinnar. „Þetta voru mjög grófar líkamsárásir, í tvígang. Í seinna skiptið kastaði starfsmaður sér fyrir höggið, líkt og sannur lífvörður Bandaríkjaforseta, en það var heljarhögg,“ segir Hrafn.
„Hann fékk næði til að undirbúa sig fyrir báðar árásirnar. Ég furða mig á því að það virðast engir verkferlar til eða viðbragðsáætlun til að bregðast við eftir fyrri árásina, sem var mjög alvarleg. Ég hef aldrei verið steinrotaður áður og ég skil ekki hvers vegna maðurinn var ekki færður eitthvað annað. Það er guðs mildi að hann náði ekki að klára þriðju árásina, þar sem aumingjans maðurinn hafði bitið það í sig að koma mér af jörðinni,“ segir Hrafn og bætir við:
„Ég tel mig þokkalega heppinn. Ég skrifa það alfarið á stjórnendur spítalans og yfirmenn heilbrigðiskerfisins að skapa þær aðstæður að svona hættulegir hlutir gerast. Atburðarrásin hefði ekki þurft að vera nema örlítið önnur, þá hefði orðið enn eitt dauðsfallið á geðdeild Landspítalans,“ segir Hrafn.

