Miðvikudagur 14. október, 2026
4.8 C
Reykjavik

Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar: „Ég fór að djamma meira – Mamma tók mig niður úr skýjunum“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Landsliðsfyrirliðinn okkar elskaði, Aron Einar Gunnarsson segist hafa misst fókusinn á sínum tíma og hafi „djammað og djúsað“ alltof mikið og alltof ungur.

Akureyringurinn og Þórsarinn Aron Einar gekk til liðs við Coventry í samnefndri borg á Englandi aðeins nítján ára gamall, árið 2008.

Eins og við mátti búast, allavega af okkur Íslendingum, sló Aron Einar strax í gegn í Coventry; mætti segja að hann hafi orðið stjarna á nánast einni nóttu. Spilaði frábærlega og dugnaðurinn, hæfileikarnir og keppnisskapið skinu í gegn aðdáendum Coventry til ómældrar gleði.

En Aron Einar segir að hann hafi á þessum tíma lifað alltof hratt svona ungur og „ég missti aðeins tökin.“

Hann kom til Coventry frá hollenska liðinu AZ Alkmaar og segir þessi lönd frábrugðin hvað varðar áhuga á fótbolta:

„Í Hollandi var meiri hugsun, en á Englandi er fótbolti trúarbrögð; þar snýst allt um fótbolta.“

- Auglýsing -

Eftir nýfengna frægð í Coventry segir Aron Einar að hann hafi misst sjónar á því sem skiptir máli og farið að drekka meira og djamma. Hann sá það fljótt sjálfur.

„Ég fann alveg fyrir því; rak mig á á ýmsum stöðum; sogaðist inn í það að vera meira en maður er – ég fór að djamma meira og meira,“ segir Aron Einar og bætir við: „Sérstaklega á seinna árinu í Coventry; þá var maður svaka karl. Þá þótti það eðlilegur lífsstíll að spila fyrir framan átján þúsund áhorfendur,“ sagði Aron Einar.

Aron Einar fór ekki niður á neinn botn en talar um að hann hafi „labbað sjálfur á vegg og ákvað að taka mig í gegn. Ég þurfti að taka mig niður úr skýjunum; ég áttaði mig á því sjálfur en tókst það með mikilli hjálp frá mömmu.“ Á þriðja árinu hjá Coventry „vissi ég að ég þyrfti að fara annað til að taka næsta skref. Ég var farinn að spila illa og ég sá það svart á hvítu.“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -