Þriðjudagur 17. mars, 2026
0.8 C
Reykjavik

Lækna-Tómas hraunar yfir Áslaugu og Þórdísi:„Ráðherrar mega ekki berja í falskar pólitískar bumbur“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Hjartaskurðlæknirinn Tómas Guðbjartsson er ekki sáttur með málflutning ráðherra Sjálfstæðisflokksins, þeirra Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra og Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur, iðnaðar- og ferðamálaráðherra. Þær vilja afnema allar Covid-takmarkanir hér á landi, í nafni einstaklingsfrelsis, en yfirlæknirinn segir ráðherrana berja í falskar pólitískar bumbur.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Mynd / Aldís Pálsdóttir

Skoðun Tómas kemur fram í aðsendri grein á Vísi. Hann segir orðum fylgja ábyrgð og bendir á að verulega slæm staða sé á Landspítalanum, sem þyngis með hverjum deginum. Við skulum gefa hjartalækninum orðið:

„Í snúinni fimmtu bylgju Covid hefur oft verið kallað eftir fyrirsjáanleika, ekki síst frá samtökum atvinnulífsins og vissum stjórnmálamönnum. Nýlega kölluðu tveir ráðherrar eftir því að allar Covid-takmarkanir yrðu afnumdar hér á landi – allt í nafni einstaklingsfrelsis. Ráðagóður Þórólfur fékk ómaklega gagnrýni, en hann, líkt og og undirritaður, vöruðu við afléttingum, ekki síst með viðkvæma stöðu Landspítala í huga,“ segir Tómas og heldur áfram:

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ráðherra. Mynd/Hákon Davíð Björnsson

„Til allrar hamingju voru landamæri okkar ekki opnuð upp á gátt, en því miður var látið undan miklum þrýstingi ýmissa hagsmunaaðila og öðrum takmörkunum aflétt of hratt. Afleiðingarnar blasa nú við í sögulega hárri tíðni Covid-sýkinga. Landspítali er enn og aftur kominn á hættustig, gjörgæsludeildir spítalans fullar upp í rjáfur og staðan bæði á smitsjúkdóma- og lungnadeild mjög þung – og þyngist daglega.“

Nú sé svo komið hér á landi að há smitttíðni Covid-19 endurspeglist í því að önnur ríki vari við ferðalögum til Íslands. Tómas spyr hvort það sé raunverulega fyrirsjáanleikinn í ferðaþjónustunni sem Áslaug og Þórdís óski eftir.

„Það verður að teljast skrítið að ráðherrar skuli stíga fram undir formerkjum einstaklingsfrelsis og afnema takmarkanir sem eru nauðsynlegar og settar á með mannúð og hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi. Skoðanaskipti eiga vissulega rétt á sér, en ráðherrar verða að gæta orða sinna og varast að berja í falskar pólitískar bumbur. Skynsemi er nefnilega merkilega fyrirsjáanleg,“ segir Tómas.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -