Föstudagur 15. maí, 2026
6.8 C
Reykjavik

Lækjartorg tekur stakkaskiptum: „Tákn fyrir nýja tíma – almannarýmið eitt mikilvægasta verkefnið“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Mér fannst svo snjallt að stilla þessu upp sem púsli en þetta púsl hefur einfaldlega vantað. Þarna kemur svo margt saman. Mér finnst þessi magnaða umbreyting borgarinnar vera líka tákn fyrir nýja tíma,“ sagði Dagur B. Eggertsson á fundi í Ráðhúsi Reykjavíkur í morgun þegar Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra veitti verðlaunahöfum viðurkenningar ásamt Degi, borgarstjóra. Þetta kemur fram á vef Reykjavíkurborgar.

Lækjartorg mun taka stakkaskiptum á næstu misserum samkvæmt tillögunni Borgaralind eftir Sp(r)int Studio og Karrens en Brands, sem bar sigur úr býtum í hönnunarsamkeppni um Lækjartorg og aðliggjandi gatnarými.

Samkeppnissvæðið náði yfir Lækjartorg, Lækjargötu frá Hverfisgötu að Austurstræti, Austurstræti frá Lækjargötu að Ingólfstorgi og Bankastræti frá Þingholtsstræti að Austurstræti.

Reykjavíkurborg og Félag íslenskra landslagsarkitekta (FÍLA) efndu til hönnunarsamkeppninnar árið 2021 og var auglýst eftir tillögum sem hefðu rými fyrir fólk að leiðarljósi í hönnun. Samkeppnin var hönnunarsamkeppni með forvali og var í tveimur þrepum. Markmið samkeppninnar var að fá fram frjóar og áhugaverðar hugmyndir um hönnun Lækjartorgs og nærliggjandi gatna. Ellefu umsóknir bárust í forvali og voru þrjár tillögur valdar til þátttöku á síðara þrepi.

Mikilvægt að rækta almannarýmið

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ávarpaði fundinn eftir kynninguna og sagði að; „Almannarýmið væri eitt mikilvægasta verkefnið sem við eigum saman. Þar komum við öll saman alveg óháð því hver við erum og hvaðan við erum að koma. Þetta er rými þar sem við mætumst og kynnumst öðru fólki. Almannarýmið hefur átt undir högg að sækja í borgum víða um heim. Þess vegna er svo mikilvægt að við ræktum almannarýmið og tryggjum nánd þess við stofnanir samfélagsins,“ sagði hún.

„Ég stend hér sem nágranni Lækjartorgs,“ sagði hún. „Ég hlakka mjög til að sjá þróun þessarar hugmyndar þar sem unnið er með að umhverfið sé lífvænlegt, að það sé mannlegt og þarna geti fólki liðið vel en þarna geti fólk líka komið saman og sagt sína skoðun,“ sagði hún.

- Auglýsing -

Djörf, hlýleg og rómantísk tillaga

Það var einróma álit dómnefndar að tillagan „uppfylli flestar áherslur samkeppnislýsingarinnar og gefi torginu og aðliggjandi gatnarýmum nýja vídd og nýtt og spennandi hlutverk í hjarta borgarinnar“.

Tillagan þykir vera allt í senn djörf, hlýleg og rómantísk. „Hún ber með sér hugmyndaauðgi, sterka fagurfræðilega sýn, og næmni fyrir umhverfi og staðaranda og lyftir Lækjartorgi upp á spennandi og áhugaverðan hátt. Tillagan nær að flétta saman nútímann og söguna samhliða því að styrkja hlutverk Lækjartorgs sem vettvang fjölbreyttra athafna og mannlífs. Sveigjanleiki, leikgleði og vel útfærð rými á torginu fela í sér ótal möguleika og tækifæri fyrir margvíslega viðburða á á öllum árstímum,“ segir í umsögn dómnefndar.

Tengir saman Stjórnarráðið, Lækjartorg og Bankastræti

Það var vel við hæfi að úrslitin væru kynnt á samgöngufundi Reykjavíkurborgar með yfirskriftinni Léttum á umferðinni 2022 þar sem Borgarlínustöð verður á Lækjartorgi og ávarpaði dómnefndin þetta í áliti sínu.

- Auglýsing -

„Heildaryfirbragð tillögunnar nær á sannfærandi hátt að tengja saman Stjórnarráðið, Lækjartorg og Bankastræti sem þjónað er af meginæð Borgarlínu sem kemur til með að liggja eftir Lækjargötu.“

Þar segir enn fremur að gróðri og dvalarsvæðum sé fléttað þarna saman á áhugaverðan hátt. Áhersla var lögð í samkeppninni á góðar tengingar og útfærslur sem styrkja samspil Lækjartorgs við fyrirhugaða Borgarlínustöð og aðstöðu henni tengdri.

Dómnefnd á seinna þrepi skipuðu:

Björn Axelsson, skipulagsfulltrúi, formaður dómnefndar.

Hjálmar Sveinsson borgarfulltrúi.

Orri Steinarsson, arkitekt og skipulagsfræðingur.

Hlín Sverrisdóttir, landslagsarkitekt, FÍLA og skipulagsfræðingur SFFÍ.

Heba Hertervig, arkitekt, AÍ.

 

Verkefnisstjóri og ritari samkeppninnar var:

Rebekka Guðmundsdóttir, borgarhönnuður.

Trúnaðarmaður dómnefndar var Hermann Georg Gunnlaugsson, landslagsarkitekt, FÍLA.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -