Það vakti athygli síðla árs 2020 þegar borgarráð Reykjavíkurborgar festi kaup á húsnæði við Kleppsveg er áður hafði hýst meðal annars kynlífshjálpartækjaverslunina Adam og Evu. Borgarráð greiddi 625 milljónir fyrir húsnæðið sem nýta á undir leikskóla. Talið var að kostnaður við endurbætur á húsnæðinu myndu kosta um 600 milljónir á þeim tíma.
Hvort sem ekki fór fram fullnægjandi mat á húsnæðinu sem er orðið ansi þreytt eða hvað þá er komin upp sú staða að Umhverfis- og skipulagssvið telur að kostnaðurinn við endurbætur á húsnæðinu munu kosta að öllum líkindum kosta milljarð króna. Það hefði því verið ódýrara að byggja nýtt húsnæði undir leikskólann.
Sjálfsagt munu einhverjir borgarbúar spyrja sig að því hver beri ábyrgðina á þessu klúðri. Hvort réttmætt hafi verið í upphafi að greiða 625 milljónir króna fyrir húsnæði og hvers vegna hinn mikli kostnaður við endurbætur hafi ekki legið fyrir frá upphafi. Kynlífstækjabúðin við Kleppsveg er að reynast borgarstjóranum ansi dýrkeypt.

