Þriðjudagur 10. mars, 2026
3.6 C
Reykjavik

KSÍ neitar að gefa upp hvað starfslokasamningur Guðna Bergssonar kostar

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Uppgjöri KSÍ við Guðna Bergsson fyrrum formann KSÍ er lokið.

Guðni sagði af sér í lok ágúst.

Þetta kemur fram í skriflegu svari til Fréttablaðsins.

Hins vegar neitar KSÍ að gefa upp hvað Guðni fær í sinn hlut að svo stöddu; þau gögn verða birt í febrúar á næsta ári þegar ársþing KSÍ fer fram.

Guðni var kjörinn formaður KSÍ árið 2017. Hneykslismálin í kringum karlalandsliðið voru hins vegar það sem felldi Guðna og alla stjórn KSÍ.

- Auglýsing -

„Það er búið að ganga frá uppgjöri við Guðna og allar upplýsingar um launamál munu koma fram á ársþingi KSÍ í febrúar“ segir Ómar Smárason hjá KSÍ í skriflegu svari til Fréttablaðsins.

Fram hefur komið að Guðni Bergsson var með 1.283.000 krónur í laun á mánuði; auk þess naut hann bifreiðahlunninda sem voru að hámarki 150.000 krónur á mánuði.

 

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -