Þriðjudagur 10. mars, 2026
3.8 C
Reykjavik

Kristófer fékk tveggja og hálfs árs dóm fyrir íkveikju á Akureyri: Lagði viskastykki yfir brauðrist

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Kristófer Örn Sigurðarson hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa í nóvember 2019 kveikt í húsinu Byrgi í Sandgerðisbót á Akureyri. Var dómurinn kveðinn upp í Héraðsdómi Norðurlands eystra í síðustu viku.

Aðfaranótt miðvikudagsins 6. nóvember 2019, kveikti Kristófer á brauðrist sem staðsett var á gangi við eldhúsið og lagði yfir hana viskastykki og gekk svo út. Olli þetta athæfi hans brunanum og er hann dæmdur fyrir það. Sjálfur bjó Kristófer á jarðhæð hússins en bruninn hafði það í för með sér að íbúar á efri hæðinni voru í bersýnilegum lífsháska segir í dómi héraðsdóms.

Vísir fjallar um málið í dag. Í dómnum kom einnig fram að augljós hætta hefði verið á yfirgripsmikilli eyðingu húsnæðisins ef eldurinn hefði náð að breiðast meira út. Íbúar á efri hæð hússins urðu varir við eldinn og létu slökkvilið vita.

Fram kemur í dómnum að klukkan 1:33 á aðfaranótt 6. nóvember 2019 hafi beiðni um aðstoð lögreglu og slökkviliðs vegna elds í Byrgi, borist. Þá hafi allir verið komnir út úr húsinu að sjálfstáðum. Tveimur mínútum eftir útkallið var lögreglan mætt á vettvang en hurð á jarðhæð hefði verið sparkað upp og lögreglan kallað inn en engin svör fengið. Á þessu augnabliki logaði eldur á gólfi milli forstofu og hols.

Sögðust nágrannarnir hafa heyrt hurðaskell á neðri hæðinni skömmu áður en eldurinn kviknaði. Var Kristófer handtekinn sömu nótt, grunaður um íkveikjuna. Þegar lögreglan handtók hann var hann flaumósa og bað um að hitta lækna, komast á geðdeild og fá lögfræðing. Harðneitaði hann þó að hafa kveikt í húsinu. Morgunin eftir játaði Kristófer að hafa ollið eldsvoðanum en það gerði hann upp úr þurru er lögregluþjónn var að fylgja honum á salernið. Þá lýsti hann í smáatriðum hvernig hann bar sig að við íkveikjuna. Klukkstund síðar leit lögreglan inn til hans í fangaklefann sem hann dvaldi í en var hann þá búinn að binda band um háls sér. Rætt var við hann og bandið tekið af honum en þá viðurkenndi hann aftur að hafa kveikt í.

Í dómnum kemur fram að um klukkan hálf 1, sömu nótt og kveikt var í, hafi lögreglan komið að heimilinu eftir að nágranni Kristófers hafði hringt og óskað eftir hjálp. Þá hafði Kristófer verið búinn að loka á heita vatnið hjá nágrannanum og búinn að slá út rafmagninu. Taldi lögreglan sig hafa leyst úr deilunum. Kvöldið áður hafði Kristófer mætt á lögreglustöðina, talandi við sjálfan sig og í miklu ójafnvægi. Bauðst honum að gista í fangaklefa um nóttina sem hann og þáði. Hafði hann sig þó á brott klukkustund síðar.

- Auglýsing -

Geðlæknirinn sem mat ástand Kristófers, sagði fyrir dóminum að hann hefði verið langveikur, hann hafi verið í geðrofsástandi af og til um margra ára skeið og fengið mikla þjónustu hjá geðveild Landspítalans sem og Sjúkrahússins á Akureyri. Virtist neysla áfengis og fíkniefna framkalla geðrofsástand hans. Mat geðlæknirinn það svo að Kristófer hefði ekki verið algjörlega ófær um að stjórna gjörðum sínum þetta umrædda kvöld, að hann áttaði sig almennt á afleiðingum sinna gjörða.

Fyrir dómi neitaði Kristófer sök en hafði játað það við skýrslutöku hjá lögreglunni, að verjanda sínum viðstöddum, að hafa kveikt í húsinu og lýsti íkveikjunni ítarlega.
Var hann eins og áður segir, dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi.

 

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -