Kristján Þór Magnússon, sveitastjóri Norðurþings hefur, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir Mannlífs til að fá viðbrögð frá honum vegna fréttar Mannlífs, ekki svarað fyrirspurnum um málið.

Nýlega birti Mannlíf frétt þar sem sagt var frá máli kvenkyns háskólanema sem kvartaði til sveitastjórans vegna kynferðislegs áreitis sem hún sagðist hafa lent í en meintur gerandi var starfsmaður Húsavíkurbæjar. Tjáði Kristján Þór henni að þar sem þetta væri orð gegn orði væri ekkert hægt að gera í málinu. Konan hrökklaðist í kjölfarið úr starfi en meinti gerandinn fékk stöðuhækkun hjá bænum, stuttu síðar.
Blaðamaður Mannlífs heyrði síðar í nýjan forseta sveitastjórnar Norðurþings, Aldey Traustadóttur sem sagðist vera kunnug málinu. Hún hefði þó ekki búið á Húsavík þegar málið kom upp fyrir 5 árum síðan en að hún hefði spurst fyrir um málið. Var henni tjáð að „farið hafi verið eftir réttum verkferlum í málinu.“ Benti hún svo blaðamanni á að heyra í sveitastjóranum því svona mál heyrðu undir hann.
Nú hefur Mannlíf reynt að ná tali af Kristján Þór frá því í siðustu viku en ekki fengið svar enn. Má segja að þögnin sé nokkuð ærandi.
Uppfært – Blaðamanni Mannlífs hefur nú loks borist svar frá sveitastjóranum sem er svoheyrandi:
Sæll Björgvin.
Eins og gefur að skilja er mér óheimilt að ræða opinberlega í fjölmiðlum einstaka starfsmannamál sem upp koma innan sveitarfélagsins. En það er auðsótt og sjálfsagt að hlutaðeigandi aðilar hafi samband við sveitarfélagið til að ræða málið frekar.
Með kveðju,
Kristján Þór

