Kristinn nokkur, íbúí í Kópavogi, varð vitni að því í gærkvöldi þegar strákagengi henti ketti fyrir bifreið á Nýbýlaveginum. Dýrið lifði árásina af og komst undan genginu við illan leik.
Kristinn segir frá atvikinu í hópi íbúa Digraneshverfis Kópavogs á Facebook. Svona lýsir hann upplifuninni:
„Ég varð vitni að mjög óskemmtilegu atviki í gærnótt, um háld eitt leytið, þegar hópur af 7 unglingsstrákum hentu ketti fyrir bíl á Nýbýlaveginum. Kötturinn lifði af en var greinilega laskaður og stökk fyrir girðinguna þegar strákarnir nálguðust hann aftur. Ef þú átt kött sem kom heim slasaður í nótt þá gæti þetta verið orsökin.“
Kattareigendur á Facebook hafa deilt færslu Kristins og þar er allt brjálað. Fríða er ein hinna brjáluðu. „Hvað er að!?“ spyr hún. Hannes nokkur er sömu skoðunar. „Aumingjar!“ hrópar Hannes.
Snjólaug er líka afar ósátt. „Hvað er að svona fólki?,“ spyr hún. Hið sama má segja um Örnu. „Svoo sjúkt!,“ segir Arna. Elva vorkennir bæði dýrinu og strákunum. „Ógeðslegt hve illa þessum strákum líður. Hvað næst? Henda barni fyrir bíl???,“ spyr Elva.

