Fyrir þremur árum síðan lét Kristinn Sigurjónsson þáverandi lektor við Háskólann í Reykjavík þessi ummæli falla í þræði í spjallhópi á Facebook:
„Það á að aðgreina vinnustaði karla og kvenna. Vandinn er bara að konur reyna alltaf að troða sér þar sem karlmenn vinna, og um leið og þær eru komnar inn, þá byrja þær að eyðileggja hann, því allir karlmennirnir eiga þá að fara að tala, hugsa og hegða sér eins og kerlingar, allt annað er áreiti og ef sagður en neðanbeltisbrandari, svo ég nefni ekki klámbrandari, þá er það kynferðisofbeldi.“
Greint var frá ummælunum í DV og leið ekki á löngu þar til Kristinn var rekinn frá HR.
Hann stefndi í kjölfarið HR fyrir héraðsdóm þar sem hann krafðist þess að uppsögnin yrði dæmd ólögmæt og honum yrðu dæmdar skaðabætur. Héraðsdómur féllst ekki á að uppsögnin hefði verið ólögleg.
Kristinn ákvað að áfrýja málinu til Landsréttar og var niðurstaða hans að dómur héraðsdóms skyldi standa.
Í dag var sett fram færsla á samfélagsmiðli af Ingimundi Stefánssyni, sem tekur fyrir frétt RÚV í gær sem ber yfirskriftina: „Ekki rétt að kalla þetta dómstól götunnar.“ Er um að ræða viðtal við lögfræðinginn Gunnar Inga Jóhannsson varðandi mál Ingós Veðurguðs, sem sjá má hér.

Ingimundur er ósáttur við vinnslu og framsetningu fréttarinnar og gagnrýnir RÚV fyrir það sem honum finnst vera léleg vinnubrögð.
Fyrrverandi rektorinn Kristinn Sigurjónsson stígur þá fram og tekur undir gagnrýni Ingimundar með afdráttarlausum hætti:
„Þarna endurspeglast hlutdrægni RÚV og fjölmiðla almennt. Forðast að segja nokkuð sjálf, en fá viðmælanda sem flaggar því sjónarmiði – áróðri – sem fjölmiðillinn vill beita. Ef það er ekki dómstóll götunnar að taka menn að lífi – óbókstaflega, svifta lífsviðurværi – með mjög óljósum óstaðfestum og nafnlausum dylgjum þá þarf viðkomandi – og RÚV – að skýra það,“ segir Kristinn og telur íslenska fjölmiðla ekki yfirleitt hafa „manndóm til að fjalla málefnalega um mál, klippa bara sundur það sem hentar þeim og þegja svo um annað. Svo ef einhver öflugur svarar þeim fullum hálsi þá væla þeir eins og stunginn grís og fá alla bæði innanlands og erlendis til að væla með sér.“
Og bætir við:
„Það er sitt hvað að birta viðtal við lögfræðing annars aðilans, því þá vita allir – nema kannski fjölmiðlafólk – að hann er að verja sinn skjólstæðing; eða að birta viðtal við aðila sem á að vera hlutlaus fagaðili en notar fagmennsku hans til að áróður fjölmiðilsins líti út fyrir að vera málefnalegur og hlutlaus.“
Kristinn var ósáttur við að Gunnar Ingi „sagði að þetta væri ekki dómstóll götunnar, en mjög margir ef ekki lang flestir telja svo vera. Menn taka út bæði dóm – ærumeiðing – og refsingu – tekjumissi. Það er léleg fréttamennska að hafa ekki spurt hann hvað er þá dómstóll götunnar.“

Segja má að Eva Eva komi með ansi sterkt svar við því sem Kristinn virðist telja hlutdrægni RÚV:
„Þarna er hæstaréttarlögmaður að tjá sig sem er beintengt umræðuefninu sem um ræðir og þú telur það vera hlutdrægni? Hér hefur RÚV beint eftir lögfræðingi Ingó, var það líka einhvern veginn snúin hlutdrægni?“ spyr hún og vísar í þessa frétt RÚV:
Verður þá í kjölfarið frekar fátt um svör og enn minna um fína drætti.

