Kristín Ómarsdóttir ljóðskáld segist fokill yfir misskiptingunni og óréttlætinu í íslensku samfélagi. Hún segir það svo slæmt að best væri að eyðileggja samfélagið. Þetta ásamt öðru sagði Kristín í Tengivagninum á Rás 1. Hún sendi nýverið frá sér ljóðasafn með ljóðum sem skrifuð eru yfir 30 ára tímabil.
Hún segist fá útrás í ljóðaskrifum sínum. „Ég finn fyrir eigin árásargirni og hún er talsverð. Ég er mjög árásargjörn þegar ég skrifa margt, en ég vil vera friðsöm, en ég vil eiginlega bara eyðileggja samfélagið. Ég er ekki meðmælt þessu samfélagi,“ segir Kristín.
Hún misskiptinguna algjöra á Íslandi. „Það er ekkert jafnrétti. Fólk er á svimandi háum launum og aðrir fá einhverjar tvö hundruð þúsund krónur til að lifa. Það getur það enginn,“ segir Kristín og heldur áfram:
„Mér finnst þetta óréttlátt og vil þetta ekki. Ég skil ekki af hverju fólk þarf að hafa aðra til að níðast á. Þá gildir það bara um allt, eins og að fólk hafi ekki mátt elska þann sem þau vilja elska, konur að elska konur. Ég sé ekki fordómana minnka. Ég held það sé vaxandi fyrirlitning og hatur.“

