Föstudagur 16. október, 2026
6.8 C
Reykjavik

Kristín æf yfir myndbandi fyrir 9 ára börn í Flataskóla: „Hver er tilgangurinn með því?“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Kristín Johansen, móðir skólabarna í Flataskóla í Garðabæ, er afar ósátt út í skólann fyrir að sýna 9 ára gömlum nemendum myndband um mikilvægi bólusetninga. Hún skilur ekki tilganginn og frábiður sér því að ungi dóttur hennar verði kennt í skólanum að hún geti dáið fái hún ekki bólusetningar.

Kristín fjallar um óánægju sína í aðsendri grein í Morgunblaðinu. Tilefnið er tölvupóstur frá umsjónarkennaranum þar sem fjáröflunarverkefni UNICEF er til kynningar og þar komið inn á að umrætt myndband verði sýnt. Í því koma fram Ævar Þór, sendihennar UNICEF, Þórólfur sóttvarnarlæknir og Nadía Lóa, formaður ungmennaráðs UNICEF, til að ræða mikilvægi bólusetninga fyrir börn.

„Þetta vil ég gagnrýna. Ég set spurningarmerki við gagnsemi þess að sýna níu ára krökkum upplýsingamyndbönd um bólusetningar þar sem þau hafa ekki forsendur til að kynna sér málið frá öðrum hliðum. Það eru vaxandi áhyggjur um tilgang og gagnsemi bólusetninga og ekki síst í dag þegar við horfum upp á að gripið hefur verið til þess ráðs að reyna mRNA-líftæknimeðferð fyrir sem flesta við veiru sem vegur ekki fleiri en flensa hefur gert í gegnum tíðina,“ segir Kristín ákveðin.

Kristín veltir fyrir sér hvort tímasetningin á sýningu myndbansins sé mögulega ekki tilviljun. „Það er hætta á að einhliða umfjöllun eins og sú sem hér er á dagskrá muni kalla fram einhliða umræðu og viðbrögð hjá börnum sem ekki hafa tækifæri né aðgang að fleiri hliðum á þessum mikilvægu og alvarlegu málum sem bólusetningar eru. Hafið þið skoðað hvort um hræðsluáróður sé að ræða í myndbandinu? Er talað þar um að börn geti dáið ef þau fá ekki bólusetningu? Hver er tilgangurinn með því?,“ spyr Kristín og bætir við:

„Ég frábið mér því að dóttur minni verði sagt beint eða óbeint að hún geti dáið ef hún fái ekki bólusetningar. Ég kæri mig ekki um að greypa það viðhorf í hana. Eitt er að hvetja börn til hreyfingar og útivistar og vekja þau til meðvitundar um réttindi sín sem einstaklinga, en allt annað að fjalla einhliða um nauðsyn bóluefna í því samhengi, það myndi teljast til áróðurs fremur en fræðslu. Þar er um að ræða flókinn málaflokk sem alls ekki allir eru á eitt sáttir um.“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -