Sunnudagur 8. mars, 2026
1.7 C
Reykjavik

Meintur ofbeldisfaðir stígur fram – Kona sakar Gísla um ofbeldi á opinberum vettvangi

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Mannlíf greindi frá því í gær að kona saki ofbeldismann sinn um að sækja sér vorkunn á Facebook eftir að hún greindi frá ofbeldinu. Konan greindi frá þessu í opnum Facebook hóp þar sem hún bað fólk um að trúa honum ekki, einnig hefur hún tekið fram að hún geti sent einkapóst með nafni og heimilisfangi hjá manninum ef fólk óskar eftir því. Maðurinn, Gísli að nafni, hafði samband við Mannlíf með sína hlið á málinu og segir barnsmóður sína deila um sig lygasögum.

„Barnsmóðir sem sakar mig um að vera ofbeldismann á opinberri Facebook síðu og sinni eigin facebook síðu er gerandi sem leikur fórnarlamb. Barnsmóðir missti skap oft í sambandinu okkar fór úr einum upp í tíu í brjálæðisköstum og sló mig og barði mig í höfuðið mörgum sinnum í sambandinu og í líkamann og baðst bara fyrirgefningar í eitt skipti. Einu sinni braut hún rauðan antíksstól í reiðiskasti. Hún hótaði mér með börnunum þegar ég bað um skilnað og sagði að málaferli gætu tekið mörg ár og ég fengi aldrei að sjá börnin mín aftur. Hún hótaði mér svo ég gæfi lögheimili barna okkar við skilnað og sagðist segja öllum að ég hafi verið vondur við sig með öðrum hótunum. Í sambandinu heyrðu nágrannar hana öskra á mig öllum illum orðum og nöfnum og hringdu í foreldra mína út af því. Ég varð fyrir líkamlegu og andlegu ofbeldi í sambandinu okkar og einnig Gasljóstrun sem ég þá áttaði mig ekki á hvað var.“

Í samtali við blaðamann Mannlífs sagði móðir Gísla frá sinni upplifun á sambandinu. Hún segist hafa verið mikið inni á heimilinu á þessum tíma og aldrei vitað af neinu ofbeldi. Sambandið hafi verið stormasamt og parið hafi verið „stál í stál“ en aldrei hafi verið nein saga um ofbeldi. Fjölskylda Gísla segist vera orðin langþreytt á áreitinu frá konunni en það eru rúm þrjú ár síðan þau skyldu og hefur hún síðan þá, sakað Gísla um ofbeldi gagnvart sér og börnum sínum.

Gísli og konan eiga tvö börn saman og eru þau með sameiginlega umgengni.

„Eftir að við eignuðumst son okkar þá sagðist hún vilja annað barn en ég var ekki alveg viss um það en þá hótaði hún mér og sagðist þá fara bara sérleið til að eignast það. Móðir mín heyrði allt þetta. Í umgengismálinu eftir skilnað skrifaði hún svo að dóttir mín hefði verið slys, hefði verið getin óvart. Hvaða manneskja getur logið svona og sagt svona ljóta lygi um sitt eigið barn?“

Móðir Gísla segist hafa orðið vitni að þessum samræðum en þegar Gísli sagðist ekki vera tilbúinn í fleiri börn sagði konan að hún myndi þá leita annað til að fá því framgengt, samkvæmt Gísla og móður hans.  Hjá sýslumanni sagði konan dóttur sína hafa orðið til fyrir slysni.

- Auglýsing -

Konan sagði blaðamanni Mannlífs að hún og börnin hennar væru í hættu vegna Gísla: ,Maðurinn getur komið og ráðist illilega á mig og mína“ sagði hún.

Alltaf eru þó tvær hliðar á öllum málum og hefur Gísli allt aðra sögu að segja: „Hún segir hvað sem er til að meiða aðra og láta aðra líta illa út. Hún kemur bæði með tilgangslausar og ljótar lygar eins og um dóttir okkar og alvarlegar til mannorðsmorðs.

Konan deildi mynd af sári í Facebook hópnum og segir Gísla hafa veitt henni þá áverka.„Málið er að ef hún hefur fengið klór eftir mig á hálsinn þá hefur það verið af því hún réðst alltaf á mig til að berja mig í líkama og höfuð og ég að verja mig. Eða þá að ég hafi aldrei veitt henni neina áverka“ Gísli bætir við að konan eigi sögu um sjálfskaða og hann telur hana jafnvel hafa veitt sér þessa áverka sjálf.

- Auglýsing -

Konan á barn úr fyrra sambandi og segir Gísli líta á son hennar sem sinn eigin. Hann, foreldrar hans og systkini voru í lífi barnsins í sjö ár. Eftir skilnað segir Gísli konuna hafa komið í veg fyrir öll samskipti sonarins við sig og fjölskyldu sína.

„Ég ól hann upp í 7 ár og er með myndir af honum sem barnsmóðir gerði sem stendur besti pabbi í heimi. Hann kallaði mig bæði Gísla pabba og pabba. Hann var mitt fyrsta barn þó ég eigi hann ekki“

„Allir í grunnskólanum vita hvernig faðir ég er. Ég mæti á foreldrafundi og aðra viðburði en við erum með sameiginlegt forræði. Það sýnir og segir bara allt sem segja þarf um hana. Hún býr til lygar um allt til að láta mig eða aðra líta illa út. Fólk úr heimabæ hennar segir að hún búi til hluti í hausnum á sér og geri það að sannleika hjá sér. Enginn af bekkjarfélögum hennar kannast til dæmis við að hún hafi lent í einelti í barnaskóla eða grunnskóla en hún hefur talað um að hafa lent í ofbeldi alla ævi, kynferðislegu og öðru ofbeldi. Vinir og ættingjar hafa rætt við fjölda fólks í heimabæ hennar vegna ummæla hennar um mig til að skilja hegðun hennar og lygar núna í rúm 3 ár.“

Gísli segist ekki hafa lagt í það að skrifa um þessi mál en að hans mati er nú kominn tími til þess að hann verji mannorð sitt fyrir börnin. Hann segir hana hafa dreyft lygasögum um víðan völl á Facebook og tekið fram að fólk geti fengið nafn og heimilisfang hans. Hún segir sig hafa orðið fyrir ofbeldi alla ævi, af mökum og í skóla. Árið 2012 skrifaði hún pistil um reynslu sína á einelti í heimabæ sínum.

Kjarni málsins er sá, samkvæmt Gísla, að hún sé að saka hann um ofbeldi sem aldrei gerðist:

„En allt þetta snýst um að hún er að saka mig um að vera ofbeldismaður sem er ekki satt núna rúmum þremur árum eftir skilnað og hún gerir það opinberlega, segir hvar ég á heima og gefur fólki upp nafn mitt. Hún er að búa til margar sögur, ýkja hlutina og taka þá úr samhengi eða snúa þeim frá sér og yfir á mig.“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -