Föstudagur 15. maí, 2026
6.8 C
Reykjavik

Kóki fylgdist með lömuðum og blindum manni: Stóð upp og hljóp alsjáandi í burtu

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Það komu margar lestir en ég fer ekki í neinar lestir fyrr en að ég sé lest sem á stendur Köln. Ég sit þarna allan daginn með töskuna en svolítið í burtu frá mér situr maður sem sýnilega er fótalaus og blindur og er að betla,“ segir Herbert Óskar Ólafsson, þekktur sem Kóki, í viðtali við Guðna Ágústsson í þætti hans Spjallvinir Guðna á hlaðvarpi Mannlífs.

Kóki á og rekur hestabúgarðinn Hrafnsholt norður af Hannover í Þýskalandi, hefur flutt út þúsundir hrossa auk þess að hafa stofnað fyrirtækið Top Reiter árið 1989 sem framleiðir enn reiðtygi og fatnað fyrir hestafólk. Hann segir sögu úr daglega lífinu þar sem blindur og lamaður maður biður um peninga á lestarstöð.

„Ég er búinn að taka eftir honum allan daginn og hann er búinn að fá mikið í dolluna því margir stoppa. En svo fer að líða á kvöldið og ég er ekki búinn að sjá neina lest sem á stendur bara Köln. Svo erum við bara eiginlega orðnir tveir eftir en þá lítur hann svona snöggt í kringum sig, tekur af sér gleraugun og hleypur í burtu. Þá var hann hvorki blindur né lamaður!“

Hér má finna viðtal Guðna við Kóka í heild sinni.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -