Laugardagur 17. október, 2026
9.8 C
Reykjavik

Ríkið klúðrar hlutdeildarlánum – Vantar peninga og úthlutun skyndilega frestað

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun virðist hafa hætt skyndilega við úthlutun vegna húsnæðiskaupa til tekju- og efnaminni einstaklinga. Ríkið er sagt hafa svikið stofnunina um áður lofað fjármagn.

Mannlíf fékk ábendingu sem snýr að úrræði sem á að standa tekju- og eignaminni einstaklingum til boða, ætli þeir sér að festa kaup á húsnæði. Svo virðist sem ekki hafi verið hægt að úthluta úrræðinu til þeirra sem á það treystu.

Kippt burt án fyrirvara

Áður hafði verið auglýst að opnað yrði fyrir umsóknir 11. maí en svo virðist sem sú tilkynning hafi verið fjarlægð áður en að auglýstum tíma kom. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun svaraði ónefndum aðila á þá leið að ekki væri hægt að úthluta að þessu sinni því HMS hafi verið svikin af ríkinu um fé sem átti að fara í úrræðið. Margir treysta á úrræðið sem nú virðist hafa verið kippt af borðinu án fyrirvara. Þetta hefur áhrif á alla þá sem eru með fyrirvara á kauptilboðum um fjármögnun á einmitt þessum lánum. Ekki hefur næsti úthlutunardagur verið auglýstur.

 

Svör HMS og Félagsmálaráðuneytisins

- Auglýsing -

Mannlíf kafaði ofan í málið og reyndi að ná sambandi við Ásmund Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, en engin svör bárust frá honum. Haft var samband við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun í fjórgang en með takmörkuðum árangri. Loforð um símtal frá aðila sem gæti svarað fyrir málið barst aldrei frá HMS. Mannlíf náði þó tali af Unni Sif Hjartardóttur sérfræðingi hjá HMS og vildi hún meina að þessar aðgerðir hefðu engin áhrif á þá sem treystu á úrræðið. Hins vegar hefur Mannlíf sannanir í höndunum um að annað sé uppi á teningnum og þetta hafi þvert á móti haft afleiðingar og það er undarlegt að sérfræðingurinn skuli ekki vita af því. Aðili sem þessar fyrirvaralausu aðgerðir höfðu áhrif á sendi tölvupóst á  Einar Georgson sérfræðing hjá HMS en fékk engin svör. Þá reyndi aðilinn símleiðis og náði þá á Einar sem bað um lengri frest til þess að svara honum varðandi málið. Þetta var í síðustu viku og enn virðist Einar vera að hugsa um það hvernig hann eigi að svara téðum aðila, eða er verið að teygja á langinn svo það þurfi ekki að bregðast við ?

Ásmund Einar Daðason Félags- og barnamálaráðherra

Á endanum komst Mannlíf í samband við Grétar Svein Theodórsson, upplýsingafulltrúa félagsmálaráðuneytisins og eftirfarandi svar fékkst frá honum eftir að hann kannaði málið:

„Fyrirkomulag við úthlutun hlutdeildarlána er þannig að þau koma til úthlutunar sex sinnum á ári. Miðað er við að þrjár úthlutanir fari fram á tímabilinu 1. janúar til 30. júní og þrjár úthlutanir á tímabilinu 1. júlí til 31. desember. Á árinu 2021 hafa farið fram tvær úthlutanir. Þriðju úthlutun, sem upphaflega átti að vera um miðjan maí, var hins vegar frestað og er gert er ráð fyrir að henni ljúki fyrir 30. júní nk. Nú er ákveðin reynsla komin á úthlutun hlutdeildarlána og var ákveðið að vinna að uppfærðri útfærslu á fyrirkomulagi fjármögnunar til framtíðar í þessum nýja lánaflokki og tók stjórn HMS og Húsnæðissjóðs þá ákvörðun að bíða með úthlutun þar til sú útfærsla liggur fyrir. Félagsmálaráðuneytið og fjármála- og efnahagsráðuneytið vinna í sameiningu að nýrri útfærslu og er gert ráð fyrir að hún liggi fyrir fljótlega.“  

- Auglýsing -
Grétar Svein Theodórsson, upplýsingafulltrúi félagsmálaráðuneytisins

 

Grétar staðfestir það að ákveðið var að fresta úthlutun en tilgreinir aðrar ástæður en HMS hafði gefið umsækjendum, að ríkið hefði ekki látið í té það fjármagn sem lofað var í úrræðið.

 

Áhrif á fjölskyldu

Ein fjölskyldan sem treyst hafði á úrræðið lýsir áhrifum þess að því hafi verið kippt burt á eftirfarandi hátt:

„Þetta hefur þau áhrif á okkur að við munum ekki ná að standa við lánin á þeirri dagsetningu sem gefin var upp og þá verður kauptilboðinu sennilega rift. Við eru  búin að standast greiðslumat í banka. Einnig sögðum við upp leiguhúsnæði og erum í vandræðum með það ef svo fer fram sem horfir.“

 Þarna erum við að horfa til þess að úrræði sem sett var á laggirnar fyrir tekju- og eignaminna fólk, hafi beinlínis verið hrifsað burt án nokkurs fyrirvara og því verður ekki neitað, að þetta kom illa við umsækendur sem treystu á úrræðið.

 

 

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -