Góðgerðarmaður Seyðisfjarðar gerði sé lítið fyrir og keyrði alla leið frá Búðardal, austur til Seyðisfjarðar með gjöf handa Seyðfirðingum, 200 blómaplöntur.
Aðalheiður Borgþórsdóttir, fulltrúi sveitastjóra & atvinnu og menningarstjóri Múlaþings hjá Sveitafélaginu Múlaþing og fyrrverandi bæjarstjóri Seyðisfjarðar segir frá þessari fallegu gjöf á Facebook vegg sínum í gærkvöldi.
Góðgerðarmaðurinn heitir Svavar Garðarsson en hann býr í Búðardal. Ætlun hans er að gróðursetja blómin við jaðar skriðunnar sem féll fyrir síðustu jól og breytti bæjarmynd Seyðisfjarðar til muna. Býst Aðalheiður við að það muni taka Svavar tvo til þrjá daga að planta blómunum og hvetur hún Seyðfirðinga til að heilsa upp á hann.

