Þriðjudagur 10. mars, 2026
3.6 C
Reykjavik

Kennarahallæri í Fossvogsskóla – Kennsla fer fram á þremur stöðum.

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Alls hafa fjórir kennarar hætt kennslu við Fossvogsskóla núna síðsumars, en einn þeirra hætti óvænt fyrir helgi. Þetta hefur Mbl.is eftir skólastjórnendum skólans, sem fjallaði um málið í gær.

Heimildir Mannlífs herma hinsvegar að kennararnir sem hætt hafa eða farið í leyfi síðan í vor séu um sjö talsins, níu, ef allir starfsmenn eru taldir.

Þó að ljóst sé að sumir hafi látið af störfum vegna tímabundinnar ráðningar eða fóru í ársleyfi er ljóst að óvissan um húsnæðismál skólans hafi ekki hjálpað til við að halda fólkinu í Fossvogsskóla.

Nemendur Fossvogsskóla hafa verið á hálfgerðum vergangi síðan mygla greindist þar fyrir jólin 2018.

Fyrra skólaárið urðu nemendur og starfsfólk skólans að láta sér það lynda að hafast við í byggingu KSÍ í Laugardalnum sem og í Þróttaraheimilinu og tókst það með ágætum.

Síðasta vetur snéru nemendur svo til að byrja með aftur í Fossvogsskóla, eða allt þar til frekari mygla fannst þar. Þá var skólinn fluttur alla leið í Korpuskóla, en þar hefur skólastarfið gengið ágætlega þrátt fyrir þröngan kost, enda er hluti af því húsnæði lokað vegna myglu.

- Auglýsing -

Eins og staðan er í dag er nú er kennt í þremur byggingum; í útikofum við Fossvogsskóla; í byggingu Hjálpræðishersins á Suðurlandsbraut, og í Korpuskóla.

Skólastjórinn Ingibjörg Ýr Pálmadóttir hefur látið eftir sér hafa að hún viðurkenni að mönnunin mætti vera betri, en hún auglýsir nú eftir nýjum starfskröftum við skólann en hún hefur sjálf þurft að taka að sér kennslu í upphafi skólaársins.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -