„Ég er dýraníðingur og réttast væri að taka mig og gelda. Og þar að auki er ég einstaklega leiðinlegur maður og biskup ætti að reka mig fyrir að leggja stóran hóp fólks í einelti,“ skrifar Sigurður Ægisson, fuglaáhugamaður, prestur og Siglifirðingur í aðsendri grein í Morgunblaðinu. Grein Sigurðar er svar við þeirri gagnrýni sem hann sætti vegna tillögu sínnar um að lausaganga katta verði bönnuð.
Grein hans einkennist af píslarvætti í léttum dúr. Hann telur réttast að biskup sendi
hann í „eitthvert afdalabrauð, þar sem hvorki
er net- né símasamband“. Hann segir það alla vega vera skoðun margra kattaeigenda
Hann rifjar upp þá forsögu málsins að 28. janúar síðastliðinn ritaði hann bréf til
skipulags- og umhverfisnefndar Fjallabyggðar og hvatti til að lausaganga katta yrði bönnuð í sveitarfélaginu á varptíma fugla frá 1. maí til 15. júlí. Erindið var í fyrstu samþykkt.
„En bæjarstjórn guggnaði – vegna utanaðkomandi þrýstings, er mér sagt,“ skrifar Sigurður. Hann segist ekki hafa afsalað sér mannréttindum þegar hann vígðist til prests árið 1985. „Ég hef tekið afstöðu. Þar að auki er ég innfæddur Siglfirðingur og tel mig hafa leyfi til að tjá mig um málefni sem í Fjallabyggð eru á baugi hverju sinni. Í þessu umrædda tilviki gerði ég það sem fuglavinur“.
Séra Sigurður segir að því sé gjarnan haldið á lofti í óskyldri umræðu að hann sé prestur. „Hins vegar er prestaspilinu gjarnan veifað, þegar ég á í hlut, og það var eins núna. Sennilega út af því, að í rökfæðinni er auðveldara að fara í manninn en boltann. Það er gömul og þekkt taktík. Og helst að reyna að gera jafnframt lítið úr honum“.
Hann reifar í grein sinni þann skaða sem hlotist hafi af köttum, þeirri ágengu og framandi dýrategund.
„En upplýsingar eru til að utan. Og þær eru sláandi. Þar kemur fram, að þeir eigi sök á útdauða tveggja skriðdýrategunda, 21 spendýrategundar og 40 fuglategunda og séu nú á tímum ógn við a.m.k. 367 tegundir í útrýmingarhættu. Heimiliskettir eru í þriðja sæti yfir þær framandi tegundir í vistkerfum jarðar sem hryggdýrum stafar mest hætta af…,“ skrifar Sigurður Ægisson. Greinin er í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.

