Fimmtudagur 14. maí, 2026
5.4 C
Reykjavik

Kattalistinn samþykktur á Akureyri – Snorri Ásmundsson leiðir listann og hyggst mjálma í burt hatur

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Listi Kattaframboðsins eða K-listans til sveitarstjórnarkosninganna í maí hefur verið samþykktur á Akureyri.

Snorri Ásmundsson listamaður boðaði á síðasta ári nýtt kattaframboð sem myndi bjóða sig fram í næstu sveitarstjórnarkosningum á Akureyri. Kviknaði hugmyndin fyrir framboðinu þegar bæjarstjórn Akureyrar samþykkti bann við lausagöngu katta á Akureyri frá og með janúar 2025. Vakti samþykktin mikla reiði um land allt.

Samkvæmt Vikubladid.is sagði Snorri hugmyndina að baki framboðsins vera þá að kettir bjóði sig fram í bæjarstjórn Akureyrar og mjálmi í burt hatursfulla bæjarfulltrúa. Sagði hann ennfremur að eigendur kattanna hafi lánað þeim kennitölur þeirra til að þeir verði kjörgengir.

Listi Kattaframboðsins í heild sinni:

1. Snorri Ásmundsson listamaður fyrir köttinn Reykjavík.
2. Ásgeir Ólafsson Lie markþjálfi fyrir Pusegutt.
3. Ragnheiður Gunnarsdóttir kattakona fyrir Snúbba.
4. Jóhanna María Elena Matthíasdóttir ferðamálafræðingur fyrir Pjakk.
5. Stefán Elí Hauksson tónlistamaður fyrir Mollý Mjáfjörð.
6. Eyþór Gylfason veitingamaður fyrir Jónsa.
7. Helga Sigríður Valdemarsdóttir listakona fyrir Rangó.
8. María F. Hermannsdóttir húsmóðir fyrir Ragga Bjarna.
9. Íris Eggertsdóttir listakona fyrir Denna Jóga.
10. Alís Ólafsdóttir öryrki fyrir Sætu.
11. Viðar Einarsson verkamaður fyrir Ösku.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -