Þriðjudagur 10. mars, 2026
3.6 C
Reykjavik

Katrín og Sigmundur segjast geta unnið saman í ríkisstjórn: „Mikilvægt að fólk geti talað saman“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, útiloka ekki stjórnarsamstarf að loknum kosningum í haust. Þau segjast eiga auðvelt með samtal og eru sannfærð um að þau geti unnið saman að góðum málum.

Þetta kom fram í máli þeirra sem gestir í þættinum Pólitík með Páli Magnússyni á Hringbraut í gærkvöldi.

Páll þáttastjórnandi spurði Katríni og Sigmund í lok þáttar hvort þau væri til í ríkisstjórnarsamstarf eftir kosningar. Sigmundur var fyrstu til svara:

„Ég held að við séum alveg sammála um eitt og annað. Eins og jafnt aðgengi allra að heilbrigðiskerfinu, þó við séum kannski ósammála um hvernig það sé best tryggt og fjármagnað. Og okkur er ágætlega til vina, við höfum þekkst frá því löngu áður en við byrjuðum í pólitík. Þannig við getum alltaf spjallað saman á nokkuð frjálsan hátt eins og við höfum séð hérna í dag. Við getum vel unnið saman að góðum málum.“

Katrín svaraði einnig spurningunni: „Já já, eins og ég sagði áðan þá lítum við bara á hinn málefnalega grunn. Svo er auðvitað mikilvægt að fólk geti talað saman, og ég held að við getum það,“ sagði Katrín.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -