„Í dag eru tíu ár síðan móðir mín lést eftir skammvinna baráttu við krabbamein og í ár eru 25 ár síðan faðir minn dó, einnig eftir stuttan slag við krabbamein,“ skrifar Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra Íslands, sem minntist foreldra sinna sem báðir urðu krabbameini að bráð.
Hún skrifaði falleg minningarorð um þau bæði á Facebook vegg sinn og birti myndir af þeim.
„Myndirnar sýna þau löngu áður en sá leiði gestur bankaði upp á, mamma er þarna á skólaskírteini, líklega úr MR en hún tók fyrsta árið í MA. Og pabbi á Siglufirði, töffaralegur að sjá. Bæði ung með framtíðina fyrir sér. Þau kvöddu bæði of snemma en áttu gott og innihaldsríkt líf. Loginn þeirra lifir enn hjá okkur sem munum eftir þeim og hugsum til þeirra með þakklæti í hjarta“.



