„Nú vil ég biðja lesendur mína afsökunar,“ segir ritstjóri Herðubreiðar, Karl Th. Birgisson, og vísar í grein sem hann sjálfur skrifaði og fjallaði um að vefmiðlinum hefðu borist – eða til hans leikið – texti sem átti að vera eftir Birgi Ármannsson þingmann, sem harðneitaði að skrifin væru hans. Sem reyndist síðan rétt. Skrifin voru Karls Th.
„Textinn í meðfylgjandi grein er hreint ekkert eftir Birgi Ármannsson. Í viðbrögðum sínum hafði hann nákvæmlega rétt fyrir sér: Þetta er „uppspuni“ og „Karl er að skemmta sér“.
Mér leiddist og kom í hug hvort ég gæti ekki aukið Birgi leti með því að skrifa fyrir hann drög að nefndaráliti. Svona er maður stundum óþarflega greiðvikinn,“ skrifar glettinn Karl Th. og bætir við:
„Ég hef fylgzt með Birgi í áratugi og taldi í yfirlæti mínu nánast formsatriði að skrifa upp í hann texta sem passaði bæði að efni og stíl. Svo ég prófaði. Núnú. Þessi stílæfing virðist hafa verið aðeins of vel heppnuð. Sérstaklega þykir mér leitt að vinir mínir á Fréttablaðinu hafi stigið ofan í holuna sem ég gróf. Viðbrögð þeirra og annarra benda þó til þess að textinn hafi ekki verið alónýtur. Það nærir hégóma minn.“
Karl Th. segir þó að „einni spurningu er þó ósvarað: Hvers vegna leið mér svona notalega inni í kollinum á Birgi Ármannssyni þessa stund sem tók að skrifa álitsdrögin? Ég ætla að velta henni fyrir mér aðeins lengur.“

