„Áhafnastjórinn hafði það mikið mikið á móti mér að hann lagði ríka áherslu á að ég yrði fyrir einelti skipsfélaga. Það tókst á síðasta skipinu sem ég var á og ég var rekin frá Eimskip árið 2017. Ég fór með þetta í lögfræðing en ég veit ekki hvort lögfræðingurinn vinnur fyrir félagið eða hvað. Maður heyrir margar sögur en mannleg hegðun og framkoma er skrýtin og oft einkennileg,“ segir Jónína Þórunn Hansen, stýrimaður, vélstjóri og kokkur, til sjós til fjölda ára.
Erfiðisvinna frá barnæsku
Jónína rekur sögu sína í ítarlegu og fróðlega viðtali í hlaðvarpi Sjóarans. Þar segir hún meðal annars frá því einelti og dónaskap sem hún hefur orðið að þola í starfi sínu jafnt hjá Eimskip og Landhelgisgæslunni svo og kvenhatri og kynþáttaníði sem hún hefur orðið vitni að í gegnum árin.
Jónína segir öðruvísi komið fram við konur til sjós og oft illa.
„Þær eiga ekki að kunna neitt, ekki geta neitt. Ég hef séð margar hörkuduglegar konur til sjós. Það er aftur á móti miklu betra að vinna með ungum mönnum en eldri, þeir eru jafnréttissinnaðri en eftir fertugt fer að að gæta á skrýtnum viðhorfum“.
Jónína er fjögurra barna móðir af sjómannsfjölskyldu, fædd 1964, ein sjö barna. Hún ólst upp við fátækt í braggahverfinu í Höfðaborginni til sjö ára aldurs þar til foreldrar hennar fluttu í bæjarblokkirnar í nýlegu byggðu Breiðholti. Jónína hætti snemma í skóla og fór að vinna til að létta undir með fjölskyldunni. Hún vann alltaf erfiðsvinnu, meðal annars við vegagerð og byggingu virkjana.
Mismunin eykst eftir menntun kvenna
Jónína hefur alltaf elskað sjóinn og sá aldrei annað en hafið sem krakki. Þegar hún skildi á þrítugsaldri ákvað hún að fara í vélskólann. „Ég vildi aldrei vera upp á neinn komin og vera sjálfbær. Ég elska sjóinn, sjómennskan er líkamlega erfið en andlægu hugarró og næring“.
Jónína segist yfirleitt hafa siglt með góðum mönnum en vissulega sé misjafn sauður í mörgu fé. „Ég hef yfirleitt haft góða skipstjóra en líka menn sem maður skilur ekki að útgerðir hafi yfirleitt í vinnu.” Aðspurð um hvort hún hafi fundið fyrir mismunun sem kona um borð segir Jónína ekki hafa verið svo í byrjun en það hafi aukist mjög eftir því sem hún menntaði sig meira og geta og kunnátta hennar jókst. „Þá byrjaði að koma bremsa í menn gagnvart manni. Hvort þetta er vanmáttartilfinning eða öfundsýki veit ég ekki”.

Jónína starfaði sem vélstjóri, kokkur og stýrimaður hjá Eimskip haft gaman af því öllu. „Ég elskaði öll störf um borð og vann alltaf miklu meira en ég átti að gera því ég gleymdi mér yfirleitt. Ég hef séð harðfullorðna karlmenn gráta úr sjóveiki en sjálf hef ég aldrei fundið fyrir henni”.
Jónína segist aldrei hafa verið þekkt fyrir að þegja og alltaf svarað fyrir sig þegar menn voru með dónakjaft við hana. „Ég læt ekki vaða yfir mig og svara í sömu mynt”.
Skipulagt einelti af hálfu yfirmanna hjá Eimskip
Hún segir í viðtalinu að hún hafi verið á leið heim frá Evrópu með fraktskipi Eimskips þegar hún veiktist skyndilega. Hún fékk nýrnarsteina og kveðst hafa verið hryllilega kvalin.
„Ég hef ofboðslega hátt kvalaþol en átti erfitt með labba en ég er ekki manneskja sem veina né garga.” Jónína segir áhafnastjórann hafa lagt sig í stöðugt einelti og viljað losna við hana með öllum tiltækum ráðum. Hann hafi bannað áhöfninni að gera neitt henni til hjálpar í veikindunum. „Það fylgdist enginn mér mér og enginn gerði neitt fyrir mér. Aldrei var hringt eftir hjálp. Ég skrifaði bréf til fjölskyldu minnar því verkurinn lá þannig að ég hélt að ég væri að fá hjartaáfall, og sagði þeim að ég fengi enga hjálp um borð. Ég setti bréfið ofan í tösku ef það skyldi fara svo að ég lifði ekki ferðina til Íslands,” segir hún í Hlaðvarpi Sjóarans.
Þegar heim var komið var hún tafarlaust lögð inn á Borgarspítalann og svo rekin að hún telur vegna veikindanna.
„Veikindin voru eina skiptið í öll þessi ár sem ég mætti of seint á vakt“.
Sökuð um fíkniefnainnflutning
Jónína segir enga af yfirmönnum skipsins hafa verið dregna til ábyrgðar og þeir nánast heiðraðir.
„Þetta er ein af þeim framkomum sem ég hef fengið að upplifa, skítlegt eðli í mönnum sem höfðu verið yndislegir við mig áður en fengu beina skipun frá áhafnastjóra. Það liggur við að það þori enginn að segja að þeir séu að tala við mig í dag. Þetta er hið góða félag, Eimskip“.
„Þeir mega allir heyra þetta“
Jónína segir að systkini sín séu misjafnlega stödd í lífinu og að yngri systir hennar hafi látist af völdum eiturlyfjanotkunar.
„Ég hef orðið fyrir einelti út af fjölskyldu minni og heyrði meira segja hjá starfsmanni Eimskips að ég væri í fíkniefnainnflutningi. Ég bara skil þetta ekki en ég á þetta enn í dag á upptöku. Ég hef aldrei á ævi minni komið nálægt fíkniefnum”. Hún segist enga hjálp hafa fengið frá mannauðsstjóra Eimskips sem sagði hana „stuða fólk”.
Jónína bað um fund um með viðkomandi sem var hafnað. „Þeir þorðu ekki að mæta mér, voru með slæma samvisku”.
Einelti gagnvart konum hjá Gæslunni
Jónína var í tæpt ár í afleysinum hjá Landhelgisgæslunni sem stýrimaður. Hún segir einelti þar einnig ríkjandi og sérstaklega gagnvart konum.
„Ég hef heyrt hvernig talað er um kvenfólk þar og ég gæti nefnt mörg dæmi og nöfn. Þetta er eitthvað sem ríkið þarf virkilega að taka á. Ég man eftir einni konu sem margbrotnaði saman því hún var sífellt hundsuð og sniðgengin af öllum. Yfirhöfuð má taka alla Gæsluna í gegn en enginn þorir að segja neitt”.
„Líkar þér ekki þessi“
Aðspurð um kynferðislega áreitni á sjónum segir Jónína suma hafa verið ágengari en aðra en það hafi frekar verið í fraktinni en í fiskiflotanum. „Það var margt reynt, sms sendingar, boð í klefa og ég veit ekki hvað”. Einu sinni lenti Jónína í því að vera kölluð upp á skrifstofu skipstjóra þar sem hann sat nakinn fyrir neðan mitti. „Þarna stóð ég í vinnugallanum þegar hann spyr hvor mér „líki ekki þessi og hvort ég væri ekki til í hann.” Ég sagðist nú hafa séð þá betri í gegnum tíðina, fann nokkrar klámspólur sem ég sendi hann á brott með og sagðist sjá hann á morgun þegar búið væri að renna af honum!“

Hún segir hafa verið yndislegan karl að mörgu leiti en til vandræða í glasi. „Eitt skiptið vaknaði ég við að hann stóð yfir kojunni minni. Ég klikkaðist og henti honum út, helmingi stærri en ég er. Ég lét hann ekki fá lyklana sem hann gleymdi í skránni fyrr en við komum í höfn“.
„Ég erfi þetta ekki, finnst þetta bara spaugilegt og hef aldrei verið illa við hann. Hann hafði líka þann manndóm að biðja mig afsökunar. Ég hef yfirleitt siglt með góðum mönnum og flestir minir skipstjórar hafa verið perlur.“
Tek ekki mark á þeim sem gefa skít í fólk
Jónína hefur fjölda fleiri sagna sem koma fram í hlaðvarpi Sjóarans, bæði góðar og slæmar. Margar hafa sært. „En ég vil engum illt, öfunda engan og er engum reið. Ég vorkenni mönnum með skrýtnar hugsanir og halda sig æðri og betri því maður veit betur. Það glymur oft hæst í tómri tunnu og ég tek ekki mark á þeim sem gefa skit í aðra til að fela eigin skit,” segir Jónína í hlaðvarpinu.

