Miðvikudagur 14. október, 2026
4.8 C
Reykjavik

Jónína stýrimaður segist ofsótt af eltihrelli: „Hann er með mig á heilanum“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Hann er með mig á heilanum þessi maður. Hann hefur samband við alla sem ég hef starfað hjá til að níða mig niður,“ segir Jónína Þórunn Hansen, stýrimaður og vélstjóri, en úrdráttur úr viðtali hennar í hlaðvarpi Sjóarans var í Mannlífi í gær. Þar lýsti hún grófu einelti sem hún hefði orðið fyrir á skipi Eimskips og hjá Landhelgisgæslunni.

Hún segir ákveðinn yfirmann á skipum Eimskips leggja sig í slíkt einelti að það sé ekki hægt að kalla hann neitt annað en eltihrelli.

„Ég hef farið í atvinnuviðtöl þar sem hann hefur hringt á undan mér til að eyðileggja atvinnumöguleika mína. Ég hef ekki gert þessum manni neitt, lánaði honum meira að segja peninga sem hann notaði við kaup á smyglvarningi,“ segir hún.

Mannlíf reyndi að hafa samband við viðkomandi mann og óskaði eftir viðbrögðum hans. Hann hefur ekki svarað fyrirpurnum Mannlífs.

Lokuð síða starfsmanna logar

Steingrímur Helgu Jóhannesson sjómaður og umsjónarmaður hlaðvarpsins Sjóarans staðfestir að hann hafi fundið fyrir sterkum viðbrögðum eftir viðtal hans við Jónínu og hann viti til að allt hafi logað á lokaðri síðu sjómanna Eimskips með niðrandi athugasemdum. Steingrímur hringdi í einn þeirra aðila sem hvað harðast gengu gegn Jónínu á síðunni og var viðkomandi mjög niðri fyrir og vildi sem minnst gera úr orðum Jónínu.

„Sumir er enn skíthræddir að tala við mig“

- Auglýsing -

Jónína segist enn fá ljót símtöl, bæði frá starfsmönnum Eimskips og Landhelgisgæslunnar, sem hún sakar um kynjamisrétti.

„Sumir er enn skíthræddir að tala við mig. Aðrir hóta mér. Ég hef sótt um aftur hjá Eimskip eftir brottreksturinn nokkrum sinnum, bara af gamni, en þeir svara mér aldrei. Núverandi ráðningastjóri var reyndar á sínum tíma háseti sem ég þjálfaði, eins merkilegt og það er nú“.

Tjáum okkur ekki um einstaka starfsmenn

- Auglýsing -

Í samtali við Mannlíf kvaðst Edda Rut Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs- og markaðsmála hjá Eimskip ekki getað tjáð sig um mál einstakra starfsmanna. „Við höfum skýra stefnum í mannauðsmálum sem við tökum alvarlega“. Edda Rut segir fyrirtækið hafa skýra stefnu jafnt í eineltis- og jafnréttismálum sem unnið sé eftir en alltaf komið upp mál í stóru fyrirtæki sem þurfi að taka sérstaklega á.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -