Laugardagur 14. mars, 2026
-0.2 C
Reykjavik

Jón Viðar um Sonju de Zorilla: „Afkomendur eiga engan einokunarrétt á umfjöllun um forfeður sína“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Á jóladag fer í loftið þátturinn Hver var Sonja de Zorrilla? á Rás 1.

Þetta verður fyrsti þáttur af fjóru þar sem umfjöllunarefnið er ævi Sonju Wendel Benjamínsson de Zorilla.

Sonja fæddist árið 1916 og átti athyglisverða ævi sem til að mynda hefur verið skrifuð bók um sem heitir Sonja – Líf og leyndardómar Sonju W. Benjamínsson de Zorilla og kom út árið 2002.

Áðurnefndir þættir á Gufunni verða í umsjón Sæunnar Gísladóttur og Katrínar Lilju Jónsdóttur.

Fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Vilhjálmur Bjarnason, er óánægður með að til umfjöllunar sé látin frænka hans, áðurnefnd Sonja:

- Auglýsing -
Vilhjálmur Bjarnason, fyrrverandi þingmaður.

„Ég velti fyrir mér hvort þess megi vænta að Ríkisútvarpið muni á jólum framtíðarinnar fjalla um einkamál látins fólks. Mér finnst með ólíkindum að RÚV skuli leyfa sér að fjalla um látna konu, sem á ekki afkomendur, í jóladagskrá. Sonja Wendel Benjamínsson de Zorilla var nákomin frænka mín. Ég kann ekki við svona dagskrárgerð.“

Færsla Vilhjálms hefur vakið athygli, og þeir sem tjá sig um hana eru flestir frekar undrandi á orðum Vilhjálms:

Hinn hreinskilni Jón Viðar Jónsson, þekktur menningargagnrýnandi og maður án allrar meðvirkni, segir að afkomendur eigi ekki neinn rétt umfram aðra hvað varðar  umfjöllun um dáið fólk:

- Auglýsing -

„Afkomendur eiga engan einokunarrétt á umfjöllun um forfeður þeirra, sé þar um að ræða fólk sem hefur átt sér sögulegt lífshlaup á einhvern hátt. En viðkvæmni fólks hér í fámenninu fer stundum út yfir öll mörk, sbr. viðbrögð sumra afkomenda Einars Ben við ævisögu Guðjón Friðriksson um hann.“

Guðjón Friðriksson

Guðjón leggur þá orð í belg og lokar í raun þessari sérkennilegu en skemmtilegu umræðu

„Ég hef nú skrifað allmargar ævisögur látins fólks. Og margir aðrir. Ævi látins fólks hefur líka verið sviðsett (t.d. Ellýar Vilhjálms og Ástu Sigurðardóttur). Skil ekki hvers vegna útvarpið má ekki fjalla um lífshlaup þeirra liðnu ef það er gert á smekklegan hátt.“

 

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -