Hinir frábæru rithöfundar, Jón Kalman Stefánsson og Sigríður Hagalín Björnsdóttir, keyptu nýverið tvær íbúðir við Bjarkargötu 8 í Reykjavík, og voru íbúðirnar, sem eru hæð og kjallari, seldar saman, og var ásett verð á þeim 129 milljónir króna.

Íbúðirnar tvær eru samtals 237 fermetrar að stærð, en í húsinu eru alls fjórar íbúðir, og var það byggt árið 1928.

Sköpunarsaga fylgir eign þeirra Jóns og Sigríðar: Íbúðirnar tvær sem þau keyptu voru í eigu stuðmannsins síkáta, Jakobs Frímanns Magnússonar.

Jón Kalman er einn allra besti rithöfundur sem við eigum og hefur nafn hans oft komið upp á síðustu árum vegna tilnefningar til Nóbelsverðlaunanna, en hann er sá íslenski rithöfundur sem talinn er getað fetað í fótspor Halldórs Laxness.

Sigríður er fyrir löngu orðin landsþekktog rómuð sem fréttamaður hjá RÚV, en á síðustu árum hefur hún brotist fram á ritvöllinn með frábærum bókum og er á góðri leið með að verða einn besti rithöfundur Íslands.


