Fimmtudagur 5. mars, 2026
-0.2 C
Reykjavik

Jóhanna: „Ef Kolbeinn beitti ekki ofbeldi hvers vegna bauð hann sáttagreiðslu og styrkti Stígamót?“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Vegna yfirlýsingar sem Kolbeinn Sigþórsson sendi frá sér til fjölmiðla, þann 1. september sé ég mér ekki annað fært en að stíga fram og tjá mig um mál sem fram að þessu var lokið af minni hálfu.

Ég er títtnefnda „vinkonan“ segir Jóhanna Helga Jensdóttir í færslu á Facebook og bætir við:

„Föstudagskvöldið 15. september 2017 var ég ásamt fleirum á skemmtistaðnum b5. Þetta kvöld veittist Kolbeinn Sigþórsson að mér með þeim afleiðingum að ég hlaut áverka og það sá á mér í nokkrar vikur á eftir. Þetta umrædda kvöld hafði Kolbeinn áður veist að Þórhildi Gyðu Arnarsdóttur, eins og ítrekað hefur komið fram í fjölmiðlum undanfarna daga.“

Hún segir að málið hafi farið í hafðbundið ferli og lögð var fram kæra hjá lögreglu:

„Skömmu síðar fáum við Þórhildur boð frá lögmanni um að skrifa undir þagnarskyldusamning. Það skyldi vera gegn greiðslu upp á 300.000 krónur. Ég afþakkaði þetta boð og málið hélt áfram í hefðbundnum farvegi hjá lögreglu.

Skömmu síðar hafði annar lögmaður samband við mig til þess að reyna að leita sátta. Við tóku nokkrir fundir þar sem farið var yfir stöðu mála og á einum þeirra komu fram tillögur að mögulegum sáttum. Kolbeinn bauð okkur Þórhildi, hvorri fyrir sig 1.500.000 krónur í sáttagreiðslu. Við samþykktum það með þeim fyrirvara að hann myndi gangast við brotum sínum gegn okkur, augliti til auglits og biðja okkur afsökunar á hegðun sinni og framferði þetta kvöld. Þá settum við það sem skilyrði hann myndi einnig gefa 3.000.000 króna til Stígamóta, sem er eins og flestir vita ráðgjafar- og fræðslumiðstöð sem berst gegn kynferðisofbeldi. Þótti okkur Þórhildi það afar viðeigandi í ljósi þess sem gerðist umrætt kvöld.“

- Auglýsing -

Kolbeinn var á þessum tíma mjög upptekinn í verkefnum erlendis og hafði ekki tök á að koma til landsins og segir Jóhanna að „úr varð að ég, Þórhildur Gyða, faðir minn og lögmaður Kolbeins flugum út á sáttarfund.  Á þeim fundi gekkst Kolbeinn við brotum sínum, sýndi iðrun og bað okkur innilega afsökunar. Það var upplifun mín á þessum tíma að Kolbeinn væri einlægur í afsökunarbeiðni sinni, hann sæi eftir því sem hann gerði og því skildum við „sátt“ og ég taldi málinu lokið af minni hálfu.“

Hún nefnir að hún hafi „aldrei rætt þetta mál opinberlega og er ástæðan sú að Kolbeinn gekkst við því sem hann gerði, baðst afsökunar og iðraðist að ég taldi. Fyrir það var hann í mínum huga maður að meiri.“

Eftir yfirlýsingu Kolbeins segir Jóhanna að nú hafi kveðið við nýjan tón þar sem hann „neitaði að hafa brotið á okkur. Ef hann beitti engan ofbeldi, hvers vegna bauð hann fram sáttagreiðslu og styrkti Stígamót sem beita sér gegn hvers konar kynbundnu ofbeldi. Hvar dregur Kolbeinn línuna á því „að vera til fyrirmyndar“ og að beita ofbeldi?“

- Auglýsing -

Og bætir við:

„Ég vil taka það skýrt fram að Stígamót komu ekki nálægt þessu máli á neinn hátt, heldur fannst okkur, í kjölfar þess sem gerðist, viðeigandi að peningurinn færi þangað. Það er því ekki rétt að Kolbeinn hafi greitt 3 milljónir til Stígamóta að eigin frumkvæði eins og kemur fram í yfirlýsingu hans, en hann sættist á það.

Eins og ég sagði hér að ofan þá ætlaði ég aldrei að stíga fram, en rétt skal vera rétt. Ég mun ekki tjá mig meira um þetta mál, þar sem því er lokið af minni hálfu, en sannleikurinn skal vera í fyrirrúmi.“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -