„Vertu varkár þegar þegar þú tekur við nýju starfi. Mér var nýlega boðið starf á hóteli þar sem ég átti að fá greitt eins og 18 ára með enga reynslu, segir Johann Iceland í færslu á Facebook síðunni Away From Home – Complaining About Iceland.“
Hann segir að starfið hafi verið auglýst sem starf í móttöku en í ljós hafi komið að einnig var ætlast til að viðkomandi undirbyggi mat, sinnti húsverkum og innkaupum fyrir veitingastað hótelsins.
„Aðrir starfsmenn sögðu mér að þeir fengju oft ekki greitt fyrr en þann 15. hvers mánaðar. Það var ætlast til að ég væri til staðar 24-7 en fengi aðeins greitt fyrir þriggja klukkustunda vakt. Svo virðist sem eigandinn hafi stundað þetta til fjölda ára.“
„Hann er að nýta sér útlendinga í þeirrivon að þeir þekki ekki reglur stéttarfélagsins“
Hann biður fólk um að hafa varann á og láta þetta ekki koma fyrir sig. Ennfremur segist hann gefa upp nafn hótelsins í einkaskilaboðum.
Fjöldi fólks hefur brugðist við færslu Johann og nefna sumir hótel og veitingastaði sem þeir eða einhver sem þeir þekkja hafa lent í svipuði. Aðrir hika þó og þora ekki að nefna staðina til að lenda ekki í hugsanlegum málaferlum. Almennt er fólk sammála um að það sé alltof algengt að gengið sé á rétt fólks í hótel- og veitingageiranum.
„Ég er glöð að sjá að ekkert hefur breyst eftir Covid. Alltaf sami skíturinn í ferðamannabransanum. Versta er að margið staðir eru að ráða í gegnum Vinnumálastofnun. Kannski við ættum að tilkynna þessa staði til Vinnumálastofnunar?“ spyr Chiara Trevisan.

