Þriðjudagur 10. mars, 2026
3.6 C
Reykjavik

Jóhann segir Bjarna Ben til syndanna: „Þið hafið hlunnfarið öryrkja um áraraðir“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Staðreynd dagsins. Vegna skattalækkana okkar síðustu tvö ár hefur fólk með mánaðarlaun á bilinu 350 – 400 þúsund um 10 þúsund krónum meira milli handanna í hverjum mánuði.“

Þetta skrifaði Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, á Facebook-síðu sína.

Viðbrögð fólks við færslunni voru almennt ekki góð og flestir sögðu Bjarna vera að stæra sig af litlu.

Jóhann Waage, kemur til skjalanna í athugasemd við færslu Bjarna og tjáir sig um átakanlegan atburð í lífi sinu, sem hann er enn að glíma við, ávarpar Bjarna:

„Bjarni, fyrir 4 árum síðan var ég heilbrigður og í góðu standi, hjólaði út um allt og var í blóma lífsins. En í heilanum mínum tifaði tímasprengja sem ég fæddist með og hún sprakk og heilbrigðiskerfið brást mér og ég var látinn liggja heima í tvo sólarhringa til viðbótar með blæðingu inn á heila,“ skrifar Jóhann og heldur áfram:

- Auglýsing -

„Eftir sit ég, eftir að hafa verið kippt harkalega niður á jörðina með margar slæmar eftirstöðvar af veikindum mínum. Ég reyni að vinna 50% vinnu til að halda fjölskyldunni minni frá því að lenda á götunni, þó ég ég sé ekki mikill bógur.“

Og bætir við:

„En þar sem að ég reyni að vinna og vera úti á meðal fólks, þá lendi ég í miklum skerðingum frá TR og er að lenda í skuld ofan á allt út af því. Ég er á leigumarkaði, húsnæðis-og leiguverð hérlendis er út úr öllum veruleika. Ég er að neyðast til að greiða um 300 þúsund á mánuði, sem er um 60-70% af mínum ráðstöfunartekjum.

- Auglýsing -

Fyrir 4 árum síðan spáði ég ekkert í öryrkjum, frekar en þið hin….fólk sem er heilt heilsu spáir ekkert í veikindum og heldur að ekkert komi fyrir það. En þið á Stjórnarheimilinu hafið algjörlega hlunnfarið öryrkja um áraraðir, sama hverju þið reynið að halda fram og loforð síðustu kosninga hafa ekki litið dagsljós.“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -