Þriðjudagur 17. mars, 2026
0.8 C
Reykjavik

Jóhann fékk Covid og má ekki fá bólusetningu: „Hvað með okkur hin? Hvaða rétt höfum við?“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Jóhann Freyr Björgvinsson kemur með mjög þarfan vinkil í umræðuna um Covid faraldurinn með færslu á Facebook. Bendir hann á að ekki allir geti fengið bólusetningu.

Æ oftar heyrast raddir sem ýja að því að óbólusettir einstaklingar verði einangraðir á einn eða annan hátt frá hinum bólusettu. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir talaði til dæmis um það nýlega að mögulega væri hægt að leyfa bólusettum að sleppa við einhverjar takmarkanir og Sigríður Dóra Magnúsdóttir framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, sagði í Speglinum á Rás 2 að sér fyndist að óbólusettir þyrftu að sæta einhverjum takmörkunum, héldi faraldurinn áfram að vaxa.

Í færslu sinni kemur Jóhann með góða spurningu er varðar þá óbólusettu sem ekki mega fara í bólusetningu.

„Hér kemur annar vinkill í Covid umræðuna þessa dagana sem virðist gleymast í öllu tali og algerlega í öllum umræðum hvar sem ég horfi, hlusta eða les. Hvað með okkur hin sem fengum Covid (ég fyrir 1 og hálfu ári síðan), urðum alvarlega veik og í mínu tilfelli fékk ég blóðtappa vegna veikindanna. Ég má hreinlega ekki fara í bólusetningu þar sem ég er í of mikilli hættu að fá aftur blóðtappa! Ég mælist ennþá með mikið og gott mótefni í blóðinu.“

Þá spyr Jóhann einnig um réttindi þeirra óbólusetta og hvort þeirra bíði samfélagsleg einangrun.

„Hvaða rétt höfum við? Munum við lokast hægt og rólega inni nema þurfa að fara í hraðpróf í hvert skipti sem við ætlum út á meðal fólks? Endum við hægt og hljóðlega í samfélagslegri einangrun? Megum ekki ferðast lengur þar sem flest lönd í heiminum fara eingöngu fram á staðfesta bólusetningu. Þessi hópur er að gleymast. Það þarf að opna á alla umræðu, taka inn alla vinkla og alla hópa. Þeir eru ekki bara tveir – bólusettir og óbólusettir!“

- Auglýsing -

Færslan hefur vakið mikla athygli en þegar þetta er ritað hafa 89 líkað við hana og fjölmargir skrifað athugasemdir, Jóhanni til stuðnings.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -