Þriðjudagur 17. mars, 2026
0.8 C
Reykjavik

„Íslenskt heilbrigðiskerfi er ekki á heimsmælikvarða – Hvaða mælikvarða ætti að nota? Richter?“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Elín Tryggvadóttir hjúkrunarfræðingur er með ákveðnar skoðanir og deilir þeim með okkur.

Hún byrjar á því að segja að „fyrir Alþingiskosningar lofa margir frambjóðendur fögrum fyrirheitum um uppbyggingu heilbrigðiskerfisins. Gullslegin loforð þeirra fuðra flest upp um leið og atkvæðin falla ofan í kjörkassann. Á botninum eru þau geymd á öruggum stað þar til frambjóðandinn þarf aftur á atkvæði almúgans að halda. Frambjóðendur vita nefnilega að það er Íslendingum hjartans mál að heilbrigðiskerfið gangi eins og smurð vél. Þeir vita að það er sama hvaða stjórnmálastefnu kjósandinn aðhyllist, hann vill eiga tryggan aðgang að heilbrigðisþjónustu fyrir sig og sína.“

Heldur áfram:

„Þetta loforð er eins og mantra sem sumir frambjóðendur þylja upp af gömlum vana án nokkurs vilja til efnda,“ og spyr „af hverju þarf heilbrigðiskerfið á vænni innspýtingu að halda? Er ekki búið að ausa formúgu í þessa hít sem gefur engan arð? Er heilbrigðiskerfið á Íslandi ekki á heimsmælikvarða?“

Og svarar og spyr aftur:

„Nei, haldið ykkur fast. Íslenskt heilbrigðiskerfi er ekki á heimsmælikvarða. Ég veit ekki einu sinni hvaða mælikvarða við ættum að nota til að meta stöðu okkar Íslendinga í heilbrigðismálum. Richter?“

- Auglýsing -

Elín nefnir „þjóðarsjúkrahús Íslendinga er staðsett í um hundrað byggingum á sautján stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Húsin eru komin til ára sinna og einbýlin eru af skornum skammti, þannig að erfitt er að sinna sóttvörnum eins og vera ber. Við munum öll hvernig fór á Landakoti síðastliðið haust. Við höfum beðið í áratugi eftir nýrri byggingu sem stenst nútímakröfur og enn þurfum við að bíða. Holan stóra við Hringbraut er táknræn fyrir aðgerðarleysi ríkisins undanfarin ár. Táknræn fyrir botninn á kassanum þar sem atkvæði þitt verður að engu,“ bendir á að „sjúklingar liggja á göngum, á salernum og inni í geymslum.

Það þarf ekki mikið að gerast til að allt fari á hliðina. Staða Landspítala er svo brothætt að þegar fjórða bylgja heimsfaraldursins lét á sér kræla í lok júlí var staða sjúkrahússins færð yfir á hættustig eftir að einungis þrír sjúklingar með Covid 19 höfðu verið lagðir inn. Þrír.

Það er alheimsfaraldur – en ástandið var hættulegt löngu áður en hún Covid litla kóróna ákvað að valda usla. Það þarf ekki alheimsfaraldur til að steypa langsveltu þjóðarsjúkrahúsinu fram af brúninni. Það þarf ekki meira til en öldrun þjóðarinnar.“

- Auglýsing -

Elín segir að á legudeildum Landspítalans dvelja á annað hundrað aldraðra sem komast hvorki lönd né strönd.

„Þeir sem stýra frábæra heilbrigðis- og velferðarkerfinu virðast nefnilega hafa gleymt því að fólk eldist. Í stað þess að verja ævikvöldinu á öldrunarstofnun eyða aldraðir síðustu mánuðunum á lyflækningadeildum sjúkrahússins þrátt fyrir að hafa fyrir löngu lokið meðferð við veikindum. Elli er nefnilega ekki sjúkdómur og okkur ber að sjá til þess að aldraðir eigi öruggt skjól. Gleymum því ekki.“

Hún segir að það séu ekki bara aldraðir sem standi höllum fæti í „óheilbrigðiskerfinu. Langir biðlistar eru í aðgerðir sem margar hverja auka lífsgæði til muna. Enn aðrar spara samfélaginu stórfé með minni lyfjakostnaði, færri innlögnum og virkni þeirra sem aðgerðirnar þurfa. Hugsaðu þér að þurfa að ganga á ónýtri mjöðm mánuðum saman þegar bein nuddast við bein í hverju sársaukafullu skrefi.“

Elín segir að „löng hefð er fyrir fjársvelti fjórðungssjúkrahúsanna og þar hefur niðurskurðurinn náð inn að beini; átröskunarteymin eru yfirfull; börn fá ekki tíma hjá talmeinafræðingum og erfitt er að fá sálfræðiaðstoð nema viðkomandi geti pungað út tugþúsundum fyrir klukkutímann. Biddu fyrir þér ef barnið þitt sýnir frávik í þroska eða hegðun. Biðin eftir greiningu lengist með hverjum deginum sem líður.“

Og Elín færir í tal að „heilbrigðiskerfinu, sem greinilega er langt frá því að vera á heimsmælikvarða, tókst að tapa trausti helmings landsmanna á einu augabragði þegar krabbameinsskoðanir voru færðar til. Konur sætta sig ekki við að leikið sé með líf þeirra. Og lítum til einkaframtaksins. Þótt tryggja þurfi eðlilegt eftirlit upplifa sérfræðilæknar að ekki sé á þá hlustað og deila þeirra við sjúkratryggingar fer ekki fram við samningaborðið heldur í fjölmiðlum. Hvernig væri að taka upp árangursríkt samtal og leggja einhverjar línur áður en skíturinn flýgur í viftuna?“

Að mati Elínar þurfum við Íslendingar „öruggt og öflugt heilbrigðiskerfi sem vex með þjóðinni og aðlagast breyttum aðstæðum þegar við á. Við verðum að gera heilbrigðisþjónustu landsmanna að sjálfbærri heild sem getur brugðist við neyðarástandi sama í hvaða formi það birtist okkur.

Það er mjög auðvelt að benda á það sem betur má fara og henda fram innistæðulausum tékkum. Það er hins vegar erfiðara að framkvæma og efna loforðin. Það krefst hugrekkis og heiðarleika að gera breytingar.“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -