Það er ein af grunnstoðunum í okkar starfi að stunda vísindi og rannsóknir og þegar tækifærin til þess eru hverfandi er það mjög fælandi fyrir fólk,“ sagði Steinunn Þórðardóttir, öldrunarlæknir og formaður Læknafélags Íslands, í samtali við Morgunblaðið. Fer hún yfir niðurstöðu McKinsey-skýrslunnar sem sýnir hvernig háskólasjúkrahúsið hrapar niður listann samanborið við nágrannaþjóðir. „Við höfum farið úr því að vera besta háskólasjúkrahúsið í vísindum samanborið við hinar Norðurlandaþjóðirnar í kringum 2002 yfir í það að fara algjörlega niður á botninn.’’
Þá kemur fram að rúmlega þriðjungur nýútskrifaðara íslenska sérfræðinga skilar sér ekki heim að námi loknu en helmingur íslenskra læknanema eru í námi erlendis. Skortur á samningum við sérfræðinga á stofum bæti ekki ástandið og lengjast biðlistar í aðgerðir vegna þessa. „Maður upplifir sig ekkert mjög velkominn í þetta umhverfi sem nýútskrifaður læknir,“ segir Steinunn en viðtalið má lesa í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.
Íslenskir læknar skila sér ekki heim – „Maður upplifir sig ekkert mjög velkominn“

VefTv
- Auglýsing -
Hlaðvörp
- Auglýsing -
[facebook_large_like_btn]
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Lestu meira
- Auglýsing -
Veistu meira um málið?
Endilega láttu heyra frá þér! Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.
Deila
Nýtt í dag
Mest lesið í vikunni
Í fréttum er þetta helst...
- Auglýsing -
