Umræða á Facebook gefur til kynna að íslenskar mæður séu fleiri farnar að segja ungum börnum sínum sannleikann um jólasveinana, ýmist vegna hræðslu barnanna við sveinana þrettán eða heiðarleika gagnvart börnunum sínum.
„Jólasveinninn má fokka sér!“
Harðar deilur sköpuðust þegar móðir skrifaði færslu um jólasveinana og skoðun sína á þeirri íslensku hefð að gefa börnum í skóinn:
„Hvað ef hún segir hinum krökkunum og eyðileggur fyrir þeim? Hún ber ekki ábyrgð á þínu barni eða hverju það kýs að trúa.“
Nokkrar mæður komu með hugmyndir til að minnka kvíðann sem getur fylgt jólasveininum: „En að segja henni bara að þú munir biðja jolasveinana um að sleppa því að koma við hjá henni og þú gefur henni í skóinn þetta árið?“
„Dóttir mín hefur alltaf átt erfitt með jólasveininn, þar til núna í ár. Ég tæklaði það þannig að skórinn fer í stofugluggann og ég bíð og vaki eftir jólasveininum og tek við þvi sem á að fara i skóinn.“
Margar voru ósáttar við þessa miklu hreinskilni og fannst vera til betri leið til að fara að þessu: „Það að þú segir, af því að þú nennir ekki getur skemmt fyrir svo mörgum öðrum en þú ætlar bara að vera með eiginhagsmuni og vera alveg sama?“
„Ekki sammála að þér eigi bara að vera alveg sama þótt að þitt barn skemmi fyrir öðru barni. Finnst það eiginlega bara svoldið ljótt af þér, þannig í raun hefuru enga samkennd, bara þitt barn sem skiptir máli?
Þitt barn upplifir kvíða og þú ert að tækla það rétt fyrir hana og segja henni sannleikan til að róa hennar litla hjarta. Þegar dóttir mín var 11ára þá sagði ég henni sannleikan en ég lét sammt líka fylgja með að það væru börn í kring um hana sem trúa enþá og við ættum að virða það og hafa það leyndó að við vissum að hann væri ekki til því við viljum ekki skemma fyrir öðrum.“

