„Notendur Google Maps gapandi hissa yfir stórkostlegri rútu“. Svo mætti þýða fyrirsögn í breska fjölmiðillinn Express sem birtist fyrr í dag.
Þar eru greint frá því að netverjar séu undrandi yfir rútunni sem sjá má hér fyrir ofan. Myndin var tekin af Google Maps og eru villur sem þessar ekki svo fátíðar en þó sjaldan eins hlægilegar.
Frétt Express er deilt í Facebook-hópnum Bakland Ferðaþjónustunnar. Þar hafa menn orð á því að þetta sé lýsandi fyrir ferðaþjónustuna undanfarð. „„Mínn reksturinn árið 2020 í einni mynd,“ skrifar einn.
Annar segir: „Allir hafa dregið saman rekstur í þessu Covidi. Hvort það er kostur að geta dregið saman rútuna eins og væri harmoikka veit ég hins vegar ekki…“

