Miðvikudagur 14. október, 2026
4.8 C
Reykjavik

Íslensk börn selja kynferðislegar myndir af sér: „Fullorðið fólk eltir grunnskólabörn“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Texti: Klara Egilson

„Það nýjasta sem við erum að sjá varðandi nektarmyndasendingarnar er það að fullorðið fólk er farið að elta uppi grunnskólabörn til að kaupa af þeim þessar kynferðislegu ljósmyndir.“ Þetta segir Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, verkefnisstjóri Jafnréttisskóla Reykjavíkur en hún gerir klámáhorf og nektarljósmyndir íslenskra ungmenna meðal annars að umfjöllunarefni í veffyrirlestri sem ber heitið „Klám og Sexting – Ungt fólk“

„Það eru einhver börn að selja af sér kynferðislegar myndir en bara núna undanfarnar vikur höfum við séð ótrúlega fjölgun. Það er eitthvað í andrúmsloftinu akkúrat núna sem að við þurfum að vera vakandi fyrir. Inn á mitt borð fæ ég úr öllum hverfum borgarinnar svona mál og því miður aukast þau alltof hratt, ég er að fá inn mál úr öllum hverfum borgarinnar þar sem fullorðnir eru að nálgast börn í gegnum samfélagsmiðla, oftast Snapchat eða PlayStation eða Instagram eða jafnvel Omegle þar sem þeir eru að bjóða þeim pening.“

Senda rafræna pöntunar- og verðlista

Kolbrún segir að dæmin nái allt niður á miðstig grunnskólanema, þar sem fullorðnir sendi íslenskum börnum jafnvel verðlista þar sem fram komi hvað viðkomandi er tilbúinn að kaupa og greiða fyrir af hálfu viðkomandi barns.

„Þessi mál eru ofboðslega erfið þar sem börn virðast ekki alltaf átta sig á hættunni sem þessu fylgir,“ segir Kolbrún jafnframt. „Þau líta á þetta sem auðvelda leið til að eignast pening. „Ég er hvort sem er að fara í sund og er á bikiní, af hverju ekki að selja myndina þó ég sé á nærbuxunum. Ég er ekki að senda klám, ég er að senda bara smá.“
Hóta börnum ofbeldi
Því miður sé raunveruleikinn þó annar og þannig segir Kolbrún mál rata inn á sitt borð í auknum mæli þar sem börnin hafni í ljótri gildru. „Hinn fullorðni er kominn í kontakt við barnið og veit hvar barnið er staðsett. Hann er með reikningsupplýsingar eða símanúmer og þeir byrja mjög fljótt að hóta börnunum. „Ef þú sendir mér ekki mynd núna eða myndbrot þá deili ég öllu sem þú ert búinn að senda mér“.

Þá vísar Kolbrún einnig til aðferðafræði níðinga sem kallast „grooming“ og gengur út á að vinna traust barns .

- Auglýsing -

„Við höfum dæmi um að fullorðinn aðili hafi farið með börn á grunnskólaaldri í verslun og keypt gjafir fyrir tugi þúsunda. Það er mjög erfitt fyrir tólf til þrettán ára gamalt barn að segja frá eða jafnvel að segja nei ef viðkomandi vill eitthvað meira en nektarmyndir eftir að hafa þegið gjafir fyrir tugi þúsunda. Þetta er vond staða sem börn eru í. Hér er gott að muna að heili barna er ekki fullþroskaður, þau er ekki alltaf skynsöm og við þurfum að veita þeim styrk og stuðning þarna.“

Hvert geta foreldrar leitað?

Sláandi niðurstöður skýrslunnar hafa vakið eðlilegar áhyggjur meðal foreldra. Þannig hefur sveitarfélagið Árborg óskað eftir fræðslufundi fyrir foreldra grunnskólanema í 5. – 10 bekk í beinu vefstreymi undir yfirskriftinni: „Börn senda kynferðislegar myndir af sér gegn greiðslu í Árborg“ og verða þar kynntar niðurstöður nýútkominnar ársskýrslu um aðstæður og líðan ungs fólks á Íslandi.

*Viðkvæmir eru varaðir við áhorfinu þar sem niðurstöður þær sem Kolbrún ræðir hér leiða þungar staðreyndir í ljós um áhrif stafræns kynferðisofbeldis á líðan og velferð íslenskra barna í dag.  

- Auglýsing -

https://www.youtube.com/watch?v=5fjQblBYNpE

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -