- Auglýsing -
Íslendingur vann 439 milljónir íslenskra króna í gærkvöldi. Sá heppni er með tölurnar í áskrift en má hann búast við gleðifréttum rétt fyrir jól.
Fyrr á árinu vann Íslendingur rúman milljarð í Víkingalottó en er vinningurinn sá næst hæsti sem hefur komið á einn miða hérlendis.
Þá var Norðmaður sem fékk annan vinning en sá var 22 milljónir króna. Þriðji vinningurinn endaði hjá öðrum Íslending sem fékk 4,1 milljón en happamiðinn var keyptur í Fjarðarkaupum í Hafnarfirði.

